Fara í meginmál

Praktísk­ur evr­ópu­rétt­ur fyrir lög­fræð­inga

5 stjörnur

Lang­ar þig að skilja hvernig evr­ópu­rétt­ur teng­ist ís­lensk­um lögum og hvernig þú getur beitt þeim regl­um í þínu starfi?

Stór hluti þeirra reglna sem íslenskir lögfræðingar vinna með á rætur í EES-samningnum. Þetta námskeið er hannað fyrir lögfræðinga sem vilja öðlast grunnskilning á EES-rétti og fá tæki og tól til að nýta hann í framkvæmd.

Námskeiðið veitir starfandi lögfræðingum hagnýtan grunn í EES-rétti og verkfærin til að beita honum í framkvæmd. Farið er yfir hvernig evrópuréttur verður hluti af íslenskum rétti í gegnum EES-samninginn, hvernig leita má réttarheimilda og hvernig unnið er með EES-gerðir.

Fjallað er um grundvallaratriði EES-réttar, muninn á ESB og EES. Þátttakendur æfa sig á raunhæfum dæmum í að finna gerðir, kanna aðlaganir og staðreyna hvort og hvernig þær hafa verið innleiddar.

Að loknu námskeiði ættu þátttakendur að hafa raunhæfar væntingar um að geta unnið með reglur evrópuréttar og vita hvar megi nálgast þær.

Námskeiðið er ætlað starfandi lögfræðingum, bæði hjá hinu opinbera og á almennum vinnumarkaði.

Engar sérstakar forkröfur eru gerðar, en þátttakendur ættu að hafa almenna lögfræðimenntun. Námskeiðið hentar sérlega vel fyrir þá sem lítið eða ekkert hafa unnið með evrópurétt áður.

„Það var gott hvernig Eva fór vel í mik­il­væg at­riði."

Fjarnám

2. desember – 3. desember 2026

6 klst. – 2 skipti

Fer fram í rauntíma á ZOOM

Dag­skrá

2. desember kl. 9:00 – 12:00

3. desember kl. 9:00 – 12:00

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

58.900 kr.

Snemmskráning: 22. nóvember. Almennt verð: 64.800 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Praktískur evrópuréttur fyrir lögfræðinga

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.