StaðnámTRAS - réttindanámskeið
22. september – 13. október 2026
5 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
45.900 kr.
Á námskeiðinu fær starfsfólk fræðslu og hagnýt verkfæri til að taka faglegar, virðingarfullar og opnar umræður við fatlað fólk um kynheilbrigði.

Á þessu námskeiði fær starfsfólk fræðslu og hagnýt verkfæri til að taka faglegar, virðingarfullar og opnar umræður við fatlað fólk um kynheilbrigði. Fatlað fólk hefur sama rétt og aðrir til kynlífs, sjálfsfróunar, nándar og sambanda. Þrátt fyrir það hefur umræðan oft verið tabú eða hreinlega gleymst í þjónustu og daglegu starfi. Afleiðingin getur verið skortur á fræðslu, óöryggi, skömm og rangar eða óraunhæfar hugmyndir um kynlíf og sambönd.
Námskeiðið byggir á mannréttindum fatlaðs fólks og hvernig starfsfólk getur skapað örugg rými þar sem einstaklingar fá fræðslu, stuðning og tækifæri til að læra um eigið kynheilbrigði. Lögð er áhersla á einfalt og rétt orðaval, að nota fræðileg heiti yfir líkams- og kynfæri, og að ræða málin á jafningjagrundvelli án þess að tala niður til fólks.
Einnig verður fjallað um mikilvægi einkarýmis, mörk, samþykki og hreinlæti. Sérstök áhersla er á hvernig starfsfólk getur komið í veg fyrir skömm, vanlíðan og óöryggi og í staðinn skapað traust, öryggi og heilbrigða umræðu.Að loknu námskeiði er starfsfólk betur í stakk búið til að ræða kynheilbrigði og hreinlæti sem eðlilegan hluta líkamsþroska, forðast fordóma og tabú, og styðja einstaklinga við að byggja upp jákvæða og virðingarfulla sjálfsmynd.
Engin sérstök aðföng eru nauðsynleg. Þátttakendur eru hvattir til að koma með spurningar eða dæmi úr eigin starfi til umræðu.
Námskeiðið er ætlað starfsfólki sem starfar með fötluðu fólki, t.d. í grunn- og framhaldsskólum, frístundastarfi, vinnu og virkni eða búsetuúrræðum. Engar forkröfur eru gerðar.
29. október 2026
3,5 klst. – 1 skipti
Fer fram í rauntíma á ZOOM
29. október kl. 12:30 – 16:00
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Staðnám22. september – 13. október 2026
5 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
45.900 kr.
Fjarnám24. september 2026
3 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
27.900 kr.
Staðnám28. september 2026
7 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
46.900 kr.
Staðnám6. október – 13. október 2026
7,5 klst. – 3 skipti
Snemmskráningarverð
49.900 kr.
Staðnám12. október 2026
8 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
57.600 kr.
Staðnám16. október 2026
6 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
43.900 kr.
Staðnám21. október – 11. nóvember 2026
5 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
45.900 kr.
Staðnám22. október – 23. október 2026
12 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
75.900 kr.
Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.