Fara í meginmál

En­dómetríósa

Viltu dýpka skiln­ing þinn á en­dómetríósu og bæta grein­ingu og með­ferð ein­stak­linga með lang­vinna grind­ar­verki?

Á námskeiðinu verður farið yfir þá þekkingu sem liggur fyrir á þessum flókna sjúkdómi ásamt hagnýtri nálgun í daglegu starfi.

Endómetríósa er algengur en oft vangreindur sjúkdómur sem getur haft veruleg áhrif á lífsgæði, frjósemi og andlega líðan. Á námskeiðinu verður farið yfir einkenni, greiningu og meðferðarmöguleika með áherslu á hagnýta klíníska nálgun og þverfaglega meðferð.

Fjallað verður um hormónameðferð, verkjameðferð, skurðaðgerðir, áhrif sjúkdómsins á daglegt líf og aðkomu heilbrigðiskerfisins að sjúkdómnum.

Að loknu námskeiði ættu þátttakendur hafa fengið aukna þekkingu á greiningu og meðferð sjúklinga með endómetríósu.

Kennslan fer fram með fyrirlestrum, umræðum og klínískum dæmum.

Námskeiðið er ætlað hjúkrunarfræðingum, en getur einnig nýst öðrum stéttum eins og læknum, ljósmæðrum, sjúkraþjálfurum og þeim sem vinna með konur með endómetríósu og langvinna verki.

Staðnám

16. október 2026

6 klst. – 1 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

16. október kl. 9:00 – 15:30

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

43.900 kr.

Snemmskráning: 7. október. Almennt verð: 48.300 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Endómetríósa

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.