StaðnámSíðmiðaldasögur: Gísla saga, Bandamanna saga og Hrafnkels saga
23. september – 11. nóvember 2026
16 klst. – 8 skipti
Snemmskráningarverð
38.900 kr.
Sívinsælu Íslendingasögunámskeiðin hjá Endurmenntun snúa aftur! Nú fjallar Ármann Jakobsson um Gísla sögu, Bandamanna sögu og Hrafnkels sögu af stakri snilld.

Hvernig fóru höfðingjar á miðöldum með völd sín og hvernig fór fyrir þeim sem lentu upp á kant við höfðingjavaldið?
Gísla saga, Bandamanna saga og Hrafnkels saga eru allar að mörgu leyti sérstæðar meðal Íslendingasagna vegna þess að áherslan í öllum þessum sögum er á fléttuna og siðferðislegt inntak hennar en ekki er rakin saga ættar eða héraðs. Í öllum þessum sögum eru mikil átök um völd og áhrif en greinilegt er að höfundar hafa siðferðisinntak átakanna í huga. Þar sem fátt bendir til að sögurnar séu ritaðar fyrr en á síðmiðöldum verða þær settar í samhengi við menningu síðmiðalda en meginaðferðin er rækileg greining á efnisatriðum, tungumáli og sviðsetningu í sögunum.
Námskeiðið hentar öllum sem eru áhugasöm um miðaldabókmenntir, bæði nýliðum sem og þeim sem hafa áður sótt námskeið Endurmenntunar. Námskeiðið getur hentað kennurum í efstu bekkjum grunnskóla og framhaldsskóla vel en einnig leiðsögumönnum og öðrum sem tengjast menningartengdri ferðaþjónustu. Engar forkröfur eru gerðar.
16 klst. – 8 skipti
Endurmenntun Háskóla Íslands
22. september kl. 19:30 – 21:30
29. september kl. 19:30 – 21:30
6. október kl. 19:30 – 21:30
13. október kl. 19:30 – 21:30
20. október kl. 19:30 – 21:30
27. október kl. 19:30 – 21:30
3. nóvember kl. 19:30 – 21:30
10. nóvember kl. 19:30 – 21:30
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Staðnám23. september – 11. nóvember 2026
16 klst. – 8 skipti
Snemmskráningarverð
38.900 kr.
Stað- og fjarnám29. september – 17. október 2026
15 klst. – 2 skipti
93.400 kr.
Staðnám5. október – 19. október 2026
8 klst. – 4 skipti
Snemmskráningarverð
45.900 kr.
Staðnám13. október – 20. október 2026
5 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
28.900 kr.
Staðnám13. október – 20. október 2026
4 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
34.900 kr.
Staðnám14. október – 4. nóvember 2026
8 klst. – 4 skipti
Snemmskráningarverð
44.900 kr.
Staðnám15. október – 12. nóvember 2026
15 klst. – 5 skipti
Snemmskráningarverð
89.900 kr.
Stað- og fjarnám20. október – 14. nóvember 2026
21 klst. – 2 skipti
125.100 kr.
Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.