Fara í meginmál

Mark­miðs­grein­ing - með gervi­greind

Lærðu hvernig beita má mark­miðs­grein­ingu til að ná fram var­an­leg­um um­bót­um í op­in­ber­um rekstri.

Markmið námskeiðsins er að efla hæfni þátttakenda til að beita skipulegri nálgun með stuðningi gervigreindar við greiningu og ákvarðanatöku gagnvart flóknum viðfangsefnum.

Til að ná hámarksárangri í rekstri verður markmið skipulagsheildarinnar að liggja ljóst fyrir. Markmiðið þarf að vera skýrt og lýsandi og laust við innri mótsagnir. En það nægir ekki að markmiðið liggi fyrir. Það þarf líka að vera skýrt hvaða skilyrði er nauðsynlegt að uppfylla til að það náist. Gerð markmiðsgreiningar (e. Goal Tree) snýst að fá fram þessa heildarmynd og svara þar með spurningunni: „Hvar viljum við vera og hvað er nauðsynlegt að gera til að komast þangað.“ Þar sem greiningin grundvallast á nauðsynjatengslum hefur hún einnig það lykilhlutverk að útiloka allt sem ekki er nauðsynlegt til að ná markmiðinu. Með þessu næst skýr fókus á það sem skiptir máli.Vel unnin markmiðsgreining er skýr vegvísir til framtíðar sem tryggir að aðgerðir og umbætur snúist um það sem skiptir máli í raun og veru.

Á þessu námskeiði læra þátttakendur að byggja upp markmiðsgreiningu frá grunni. Við hagnýtum gervigreind til að hraða ferlinu og bæta greininguna. Nemendur koma með eigin viðfangsefni, sem geta falist í greiningu fyrir stofnunina í heild eða fyrir afmarkað verkefni.

Námskeiðið er hluti af röð fjögurra sjálfstæðra námskeiða sem ber yfirskriftina Varanlegar umbætur í opinberum rekstri.

Námskeiðið er ætlað stjórnendum og sérfræðingum í opinberum rekstri. Það er sérstaklega gagnlegt fyrir stofnanir sem eru að hefja innleiðingu gervigreindar því lögð er sérstök áhersla á áhrif hennar á skipulag, stjórnun og mönnun.

Staðnám

19. október – 23. október 2026

8 klst. – 2 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

19. október kl. 8:30 – 12:30

23. október kl. 8:30 – 12:30

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

68.900 kr.

Snemmskráning: 9. október. Almennt verð: 75.800 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Markmiðsgreining - með gervigreind

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.