Fara í meginmál

SharePoint Pages - frá grunni að fag­legri fram­setn­ingu

Góðar SharePoint síður eru lyk­ill að skýr­ari upp­lýs­inga­miðl­un og betra að­gengi að efni. Lærðu að skapa fag­leg­ar og not­enda­væn­ar síður sem nýt­ast strax í starfi.

Vel uppsettar SharePoint síður auðvelda miðlun upplýsinga, bæta aðgengi starfsfólks að efni og stuðla að samræmdri framsetningu upplýsinga innan vinnustaða.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að sýna hvernig byggja má upp skýrar, faglegar og notendavænar vefsíður með þeim verkfærum sem SharePoint Pages býður upp á. SharePoint Pages hentar til dæmis sérstaklega vel fyrir innri vefi og gæðahandbækur svo eitthvað sé nefnt.

Þátttakendur búa til síðu og spreyta sig á verkefnum til að auka færni sína. Verklegar æfingar tryggja að þátttakendur geta strax nýtt þekkinguna í starfi.

Grunnnámskeið fyrir þau sem vilja læra að nota SharePoint Pages til að miðla upplýsingum á sínum vinnustað.

Staðnám

23. september – 24. september 2026

6 klst. – 2 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

23. september kl. 13:00 – 16:00

24. september kl. 13:00 – 16:00

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

58.900 kr.

Snemmskráning: 13. september. Almennt verð: 64.800 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

SharePoint Pages - frá grunni að faglegri framsetningu

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.