Fara í meginmál

Vef­stjórn – frá grunni til gervi­greind­ar

Vef­ur­inn er í þínum hönd­um. Fáðu hag­nýta fræðslu og verk­færi sem þú getur nýtt strax.

Hagnýtt 6 klst námskeið í vefstjórn þar sem farið verður yfir allt frá grunnatriðum til mælinga, samfélagsmiðla og vefverslana – og í ár er líka nýr kafli um gervigreind í vefstjórn.

Á námskeiðinu er fjallað um umsjón með vefsvæðum, stórum sem smáum. Farið er yfir alla helstu þætti vefstjórnunar – frá grunnatriðum og verkfærum til mælinga, samfélagsmiðla og vefverslana. Sérstaklega er fjallað um hvernig gervigreind (AI) er að breyta vefstýringu og hvernig þátttakendur geta nýtt sér AI-verkfæri í daglegu starfi. Námskeiðið er hannað þannig að þátttakendur fari heim með bæði heildarmynd og hagnýtar hugmyndir sem þeir geta nýtt sér strax.

Námskeiðið hentar öllum sem sinna vefstjórn eða vefumsjón, hvort sem það er aðalhlutverk þeirra eða meðfram öðrum störfum. Engar forkröfur eru gerðar – námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa einhverja reynslu og vilja uppfæra þekkingu sína.

„Ég tek ým­is­legt út úr þessu nám­skeiði, tips og tricks en líka al­menn­ar góðar ábend­ing­ar um hvernig gera má vef­inn betri og að­gengi­legri."

Staðnám

5. október – 6. október 2026

6 klst. – 2 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

5. október kl. 13:00 – 16:00

6. október kl. 13:00 – 16:00

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

58.700 kr.

Snemmskráning: 25. september. Almennt verð: 64.600 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Vefstjórn – frá grunni til gervigreindar

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.