Fara í meginmál

Menn­ing­ar­færni við mannauðs­stjórn­un

Hvernig nýtir þú menn­ing­ar­leg­an fjöl­breyti­leika sem styrk­leika á vinnu­stað?

Á þessu námskeiði er fjallað um hvernig menning, gildi og samskiptastílar móta samstarf, samskipti og ákvarðanatöku og þátttakendur fá hagnýt verkfæri til að takast á við áskoranir og tækifæri fjölbreyttra vinnustaða.

Samstarf og samskipti í fjölbreyttu starfsumhverfi krefjast skilnings á þeim gildum, viðhorfum og væntingum sem móta hegðun fólks. Þótt auðvelt geti verið að taka eftir sýnilegum menningarmun reynist oft meira krefjandi að átta sig á þeim undirliggjandi gildum sem hafa áhrif á samskipti, samstarf og ákvarðanatöku.

Á þessu hagnýta og gagnvirka námskeiði öðlast þátttakendur aukinn skilning á því hvernig menning og gildi hafa áhrif á samskipti á vinnustað. Fjallað verður um helstu áskoranir og tækifæri sem skapast þegar fólk með ólíkan menningarlegan bakgrunn starfar saman, auk þess sem kynntar verða hagnýtar leiðir til að stuðla að árangursríku samstarfi og inngildandi vinnustaðamenningu.

Kennslan byggir á umræðum, dæmum og æfingum sem styðja við virka þátttöku og yfirfærslu á eigin starfsvettvang. Námskeiðið er sérstaklega sniðið að þörfum þeirra sem starfa við mannauðsstjórnun.

Staðnám

21. október 2026

4 klst. – 1 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

21. október kl. 8:30 – 12:30

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

40.500 kr.

Snemmskráning: 11. október. Almennt verð: 44.600 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Menningarfærni við mannauðsstjórnun

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.