Fara í meginmál

Leið­sögu­mað­ur­inn

Meg­in­markmið nám­skeiðs­ins er að und­ir­búa nem­end­ur fyrir starf leið­sögu­manns með því að efla fag­lega þekk­ingu, verk­lega færni og sið­ferð­is­lega með­vit­und.

Þetta námskeið er hluti af leiðsögunámi en opið öllum áhugasömum. Hægt er að taka námskeiðið með tvennum hætti: Án námsmats – fyrir þau sem vilja sækja námskeiðið sér til fróðleiks og skemmtunar. Með námsmati – fyrir þau sem vilja fá staðfest námskeið með námsárangri og geta þá nýtt það inn í leiðsögunám síðar.Þau sem hyggjast taka námskeiðið með námsmati þurfa að uppfylla inntökuskilyrði leiðsögunáms. Viðkomandi þurfa að hafa samband við Endurmenntun með því að senda tölvupóst á netfangið nemehi@hi.is.

Meginmarkmið námskeiðsins er að undirbúa nemendur fyrir starf leiðsögumanns með því að efla faglega þekkingu, verklega færni og siðferðislega meðvitund. Fjallað er um hlutverk og ábyrgð leiðsögumanns, samskipti við ólíka hópa, framsögn og framkomu, miðlun fróðleiks og túlkun menningar- og náttúruarfs. Áhersla er lögð á skipulag og framkvæmd ferða, öryggismál, viðbrögð við óvæntum aðstæðum og þjónustulund. Nemendur kynnast laga- og starfsumhverfi greinarinnar, sjálfbærni í ferðaþjónustu og faglegum viðmiðum um gæði og siðferði í leiðsögn. Þjálfuð er hæfni til að aðlaga efni og framsetningu að mismunandi markhópum og aðstæðum.

Hæfniviðmið:

Við lok námskeiðsins getur nemandi:

  • útskýrt hlutverk, ábyrgð og siðferðileg viðmið leiðsögumanns.
  • skipulagt og undirbúið leiðsögn með skýrum markmiðum og tímasetningu.
  • miðlað fróðleik á skýran og skipulegan hátt og aðlagað efni og framsetningu að ólíkum markhópum og aðstæðum.
  • brugðist við ófyrirséðum aðstæðum og áföllum á viðeigandi hátt.
  • greint mikilvægi sjálfbærni og faglegra gæðaviðmiða í leiðsögn.

Námskeiðið er skipulagt sem fjarnám með staðlotum. Kennt er á íslensku og námsmat fer einnig fram á íslensku. Í upphafi hvers námskeiðs er fjarfundur með kennara og upptökur af fyrirlestrum eru í kjölfarið gerðar aðgengilegar á kennslusvæði. Staðlotur í námskeiðinu eru: 5. og 26. september kl. 9:00 - 16:00.

Stað- og fjarnám

1. september – 26. september 2026

Tímalengd ekki skráð

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

1. september kl. 17:00 – 19:55

5. september kl. 9:00 – 16:00

26. september kl. 9:00 – 16:00

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

93.400 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Leiðsögumaðurinn

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.