Fara í meginmál

Ís­lenskt nú­tíma­sam­fé­lag

Meg­in­markmið nám­skeiðs­ins er að gefa nem­end­um yf­ir­lit yfir mótun og þróun ís­lensks nú­tíma­sam­fé­lags.

Þetta námskeið er hluti af leiðsögunámi en opið öllum áhugasömum. Hægt er að taka námskeiðið með tvennum hætti: Án námsmats – fyrir þau sem vilja sækja námskeiðið sér til fróðleiks og skemmtunar. Með námsmati – fyrir þau sem vilja fá staðfest námskeið með námsárangri og geta þá nýtt það inn í leiðsögunám síðar.Þau sem hyggjast taka námskeiðið með námsmati þurfa að uppfylla inntökuskilyrði leiðsögunáms. Viðkomandi þurfa að hafa samband við Endurmenntun með því að senda tölvupóst á netfangið nemehi@hi.is.

Meginmarkmið námskeiðsins er að gefa nemendum yfirlit yfir mótun og þróun íslensks nútímasamfélags. Fjallað er um helstu þætti sem hafa áhrif á samfélagsgerðina, þar á meðal lýðfræði og byggðaþróun, landfræðilegar forsendur, stjórnskipulag og stjórnmál, velferðarkerfi, vinnumarkað og efnahagslíf. Sérstök áhersla er lögð á áhrif samfélags- og efnahagsbreytinga, fjölbreytileika og hlutverk innflytjenda, sem og stöðu Íslands í alþjóðlegu samhengi. Nemendur vinna með lýðfræðileg gögn og aðrar heimildir til að átta sig á tengslum milli samfélagslegra þátta. Áhersla er lögð á að tengja fræðileg hugtök og kenningar við raunveruleg dæmi og samtímaumræðu.

Hæfniviðmið:

Við lok námskeiðsins getur nemandi:

  • lýst helstu þáttum sem móta íslenskt nútímasamfélag og tengslum þeirra.
  • útskýrt áhrif lýðfræði, efnahags, stjórnmála og velferðarkerfis á samfélagsþróun.
  • beitt lýðfræðilegum hugtökum og einföldum tölfræðilegum aðferðum við útskýringar mannfjölda- og byggðaþróunar.
  • útskýrt áhrif vinnumarkaðar, fjölbreytileika og innflytjenda á samfélagsgerð.
  • borið saman stöðu Íslands og annarra ríkja með hliðsjón af alþjóðlegum tengslum.
  • aflað tölulegra upplýsinga úr fræðilegum og opinberum heimildum og miðlað þeim til ferðamanna.

Námskeiðið er skipulagt sem fjarnám með staðlotum. Kennt er á íslensku og námsmat fer einnig fram á íslensku. Í upphafi hvers námskeiðs er fjarfundur með kennara og upptökur af fyrirlestrum eru í kjölfarið gerðar aðgengilegar á kennslusvæði. Staðlota í námskeiðinu er: 17. október, kl. 9:00 - 17:00.

29. september – 17. október 2026

Tímalengd ekki skráð

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

29. september kl. 17:00 – 19:55

17. október kl. 9:00 – 17:00

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

93.400 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Íslenskt nútímasamfélag

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.