Fara í meginmál

Laug­ar­dags­leið­ang­ur - Töfr­ar kvik­mynda­tón­list­ar

Hvaða áhrif hefur tón­list­in sem hljóm­ar í kvik­mynd­um á okkur? Hvernig breyt­ist upp­lif­un­in þegar tón­list­in breyt­ist?

Tónlist gegnir veigamiklu hlutverki í kvikmyndum og á stóran þátt í þeim tilfinningalegu áhrifum sem áhorfendur upplifa. En hvað er það sem einkennir áhrifamikla kvikmyndatónlist? Hvernig getur mismunandi tónlist breytt upplifun, samhengi og jafnvel merkingu atriða?

Á þessu námskeiði verður farið í stuttan og skemmtilegan leiðangur um heim og sögu kvikmyndatónlistar, allt frá þöglum myndskeiðum frá 19. öld til Netflix-mynda dagsins í dag.

Fjallað verður um sögu, eðli og hlutverk kvikmyndatónlistar með aðstoð fjölda myndbrota og einnig skyggnst inn í starf kvikmyndatónskáldsins sjálfs. Þátttakendur fá að kynnast nokkrum af brautryðjendum greinarinnar og dýpka skilning sinn á þessari mikilvægu hlið kvikmyndanna.

Námskeiðaröðin Laugardagsleiðangur er ætluð ungmennum 10 ára og eldri í fylgd forráðamanna. Með hverri skráningu fullorðins fylgir aðgangur fyrir 1-2 ungmenni á aldrinum 10-17 ára. Athugið að námskeiðið er ekki ætlað börnum yngri en 10 ára. Vinsamlegast skráið í athugasemdareit við skráningu nöfn og fæðingarár ungmennanna sem koma með.

Staðnám

14. nóvember 2026

2 klst. – 1 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

14. nóvember kl. 10:00 – 12:00

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

14.900 kr.

Snemmskráning: 4. nóvember. Almennt verð: 16.400 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Laugardagsleiðangur - Töfrar kvikmyndatónlistar

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.