StaðnámHljóðfærni - fyrirlögn greiningarprófs
9. nóvember 2026
4 klst. – 1 skipti
36.200 kr.
Hvaða fæðuvenjur skipta mestu máli fyrir góða heilsu barna og unglinga?

Á þessu námskeiði verður farið yfir hvað vísindin segja, hvaða upplýsingar standast skoðun og hvað ber að varast í þeirri upplýsingaóreiðu sem ríkir um mataræði og næringu.
Mataræði barna og unglinga hefur áhrif á vöxt, þroska, líðan og heilsu, en á sama tíma getur verið krefjandi fyrir foreldra og umönnunaraðila að átta sig á því hvaða ráðleggingar skipta mestu máli í daglegu lífi. Upplýsingar um næringu og hollustu eru alls staðar og skilaboðin geta verið bæði misvísandi og ruglingsleg.
Á námskeiðinu verður farið yfir helstu ráðleggingar um mataræði með áherslu á grunnskólabörn og unglinga og hvernig hægt er að útfæra þær í hversdeginum. Fjallað verður meðal annars um mikilvægi fjölbreytts mataræðis, reglulegra máltíða og þess að fullnægja næringarþörf barna og unglinga á mismunandi aldursskeiðum.Einnig verður farið yfir algeng málefni og áskoranir sem foreldrar og umönnunaraðilar standa frammi fyrir, svo sem matvendni, óreglulegar matarvenjur, mikla íþróttaiðkun, ofnæmi og óþol. Áhersla verður lögð á hvernig hægt er að styðja við góðar matarvenjur og jákvætt samband við mat. Ráðleggingar um mataræði verða grundvöllur fræðslunnar og áhersla lögð á einföld og raunhæf ráð sem nýtast í daglegu lífi. Einnig verður fjallað um hvenær þörf getur verið á fæðubótarefnum og hvað ber að hafa í huga við val og notkun þeirra.
Námskeiðið hentar m.a. foreldrum og uppalendum, starfsfólki í grunnskólum, heilbrigðisstarfsfólki, þjálfurum, íþróttakennurum og öðrum sem starfa við heilsueflingu, hreyfingu eða ráðgjöf um mataræði.
18. nóvember 2026
2,5 klst. – 1 skipti
Endurmenntun Háskóla Íslands
18. nóvember kl. 19:30 – 22:00
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Staðnám9. nóvember 2026
4 klst. – 1 skipti
36.200 kr.
Staðnám11. nóvember – 18. nóvember 2026
6 klst. – 2 skipti
43.800 kr.
Staðnám11. nóvember 2026
2,5 klst. – 1 skipti
21.900 kr.
Fjarnám12. nóvember 2026
1,5 klst. – 1 skipti
13.100 kr.
Fjarnám12. nóvember – 3. desember 2026
5 klst. – 2 skipti
Fullbókað – skrá á biðlista
55.500 kr.
Staðnám13. nóvember – 14. nóvember 2026
16 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
99.900 kr.
Staðnám16. nóvember – 17. nóvember 2026
4 klst. – 2 skipti
29.600 kr.
Fjarnám16. nóvember 2026
3 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
22.900 kr.
Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.