FjarnámNærvera - að hlúa að sjálfum sér og öðrum
26. maí 2026
4 klst – 1 skipti
Snemmskráningarverð

Viltu læra (meira) um „Sáttar- og ábyrgðarmeðferð“ (e. Acceptance and Commitment Therapy, ACT)?
Viltu læra að nálgast skjólstæðinga þína út frá samkenndar- og einstaklingsmiðaðri nálgun?
Viltu æfa tæknina í rými sem er ódæmandi og svarar spurningum?
Viltu fara út fyrir þægindarammann og öðlast meiri sátt í lífi og starfi?
Viltu læra kenninguna á bak við ACT og öðlast dýpri þekkingu?
ACT er örast vaxandi gagnreynda meðferðarformið í heiminum í dag.ACT hefur sýnt árangur þvert á raskanir (e. cross diagnostical).ACT hentar öllum.ACT hefur verið þróað sem bæði snögg íhlutun fyrir t.d. heilsugæslu og bráðadeildir og lengra meðferðarform.
ACT vinnustofa fyrir fagaðila er hugsuð fyrir fagfólk sem vinnur með fólki í daglegu starfi (hér er átt við heilbrigðisstarfsfólk svo sem sálfræðinga, félagsráðgjafa, sjúkraþjálfara, lækna og hjúkrunarfræðinga). Vinnustofa 1 er tveir dagar. Farið verður í kenninguna að baki meðferðarforminu (e. Relational frame theory) til að kanna hugmyndafræðina. Farið verður í undirstöður ACT (sexhyrninginn), hvað rannsóknir hafa sagt og árangur þess við hinar ýmsu raskanir skoðaðar. Farið verður í hvert horn á meðferðinni og það útskýrt nánar. Samhliða þessu verður æfð tækni eins og að „varpa akkeri“ og aðrar æfingar til að meðferðaraðilar geti byrjað að nota ACT með sínum skjólstæðingum.
Ef vel gengur með vinnustofu 1 er hugsunin að dýpka enn á þekkinguna með frekari vinnustofum.
13. nóvember – 14. nóvember 2026
16 klst – 2 skipti
Endurmenntun Háskóla Íslands
13. nóvember kl. 10–18
14. nóvember kl. 9–17
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Fjarnám26. maí 2026
4 klst – 1 skipti
Snemmskráningarverð
Fjarnám24. september 2026
3 klst – 1 skipti
Snemmskráningarverð
Staðnám28. september 2026
7 klst – 1 skipti
Snemmskráningarverð
Staðnám6. október – 13. október 2026
7,5 klst – 3 skipti
Snemmskráningarverð
Staðnám12. október 2026
8 klst – 1 skipti
Snemmskráningarverð
Staðnám22. október – 23. október 2026
12 klst – 2 skipti
Snemmskráningarverð
Staðnám26. október – 27. október 2026
9 klst – 2 skipti
Snemmskráningarverð
Fjarnám10. nóvember 2026
7 klst – 1 skipti
Snemmskráningarverð
Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.