StaðnámAð rita ævisögur og endurminningar
5. október – 19. október 2026
8 klst. – 4 skipti
Fullbókað – skrá á biðlista
50.500 kr.
Hvað gerðist eftir að Ísland varð hluti af ríki Noregskonungs?

Á þessu námskeiði verður fjallað um valdabaráttu, lög og stjórnmál frá lögtöku Jónsbókar árið 1281 til siðbreytingar árið 1551. Þótt konungsvaldið væri orðið hluti af íslenskum veruleika var samband Íslands og konungs hvorki einfalt né átakalaust. Íslendingar vísuðu í fyrri hefð varðandi lög, rétt og sjálfsstjórn, meðal annars í skilmálaskrám eins og Gamla sáttmála. Konungsfulltrúar áttu í flóknum samskiptum við íslenska höfðingja, alþingi og almenning og oft urðu átök um túlkun laga, framkvæmd valds og mörk konungsvaldsins. Með því að skyggnast inn í þessi átök fæst innsýn í hvernig stjórnskipan Íslands tók breytingum á löngum tíma, þegar íslenskt samfélag var að aðlagast breyttu valdajafnvægi, m.a. á Norðurlöndum, án þess að sleppa tökunum á hefðum og venjum. Sagan varðar því ekki aðeins konung og embættismenn heldur einnig íslenskt samfélag, valdajafnvægi innan þess og forn réttindi eins og Íslendingar skilgreindu þau. Á námskeiðinu verður gerð grein fyrir mikilvægustu frumheimildum um þetta tímabil og hvernig þær varpa ljósi á stjórnmálasögu þess.
Námskeiðið er ætlað öllu áhugafólki um sögu Íslands og almenna miðaldasögu. Mælt er með að þátttakendur á námskeiðinu kynni sér bókina „Skattland. Valdstjórn á Íslandi 1281 – 1551“ (Reykjavík: Sögufélag, 2026) eftir Sverri Jakobsson.
6. apríl – 20. apríl 2027
6 klst. – 3 skipti
Endurmenntun Háskóla Íslands
6. apríl kl. 19:30 – 21:30
13. apríl kl. 19:30 – 21:30
20. apríl kl. 19:30 – 21:30
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Staðnám5. október – 19. október 2026
8 klst. – 4 skipti
Fullbókað – skrá á biðlista
50.500 kr.
Staðnám13. október – 20. október 2026
5 klst. – 2 skipti
31.800 kr.
Staðnám14. október – 4. nóvember 2026
8 klst. – 4 skipti
49.400 kr.
Staðnám15. október – 12. nóvember 2026
15 klst. – 5 skipti
Snemmskráningarverð
89.900 kr.
Stað- og fjarnám20. október – 14. nóvember 2026
21 klst. – 2 skipti
125.100 kr.
Staðnám22. október – 5. nóvember 2026
6 klst. – 3 skipti
Snemmskráningarverð
33.900 kr.
Staðnám2. nóvember – 30. nóvember 2026
10 klst. – 5 skipti
Snemmskráningarverð
53.900 kr.
Staðnám2. nóvember – 16. nóvember 2026
7,5 klst. – 3 skipti
Snemmskráningarverð
41.500 kr.
Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.