Stað- og fjarnámÍslensk menning
17. nóvember – 5. desember 2026
24 klst. – 2 skipti
125.100 kr.
Hvað gerðist eftir að Ísland varð hluti af ríki Noregskonungs?

Á þessu námskeiði verður fjallað um valdabaráttu, lög og stjórnmál frá lögtöku Jónsbókar árið 1281 til siðbreytingar árið 1551. Þótt konungsvaldið væri orðið hluti af íslenskum veruleika var samband Íslands og konungs hvorki einfalt né átakalaust. Íslendingar vísuðu í fyrri hefð varðandi lög, rétt og sjálfsstjórn, meðal annars í skilmálaskrám eins og Gamla sáttmála. Konungsfulltrúar áttu í flóknum samskiptum við íslenska höfðingja, alþingi og almenning og oft urðu átök um túlkun laga, framkvæmd valds og mörk konungsvaldsins. Með því að skyggnast inn í þessi átök fæst innsýn í hvernig stjórnskipan Íslands tók breytingum á löngum tíma, þegar íslenskt samfélag var að aðlagast breyttu valdajafnvægi, m.a. á Norðurlöndum, án þess að sleppa tökunum á hefðum og venjum. Sagan varðar því ekki aðeins konung og embættismenn heldur einnig íslenskt samfélag, valdajafnvægi innan þess og forn réttindi eins og Íslendingar skilgreindu þau. Á námskeiðinu verður gerð grein fyrir mikilvægustu frumheimildum um þetta tímabil og hvernig þær varpa ljósi á stjórnmálasögu þess.
Námskeiðið er ætlað öllu áhugafólki um sögu Íslands og almenna miðaldasögu. Mælt er með að þátttakendur á námskeiðinu kynni sér bókina „Skattland. Valdstjórn á Íslandi 1281 – 1551“ (Reykjavík: Sögufélag, 2026) eftir Sverri Jakobsson.
6. apríl – 20. apríl 2027
6 klst. – 3 skipti
Endurmenntun Háskóla Íslands
6. apríl kl. 19:30 – 21:30
13. apríl kl. 19:30 – 21:30
20. apríl kl. 19:30 – 21:30
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Stað- og fjarnám17. nóvember – 5. desember 2026
24 klst. – 2 skipti
125.100 kr.
Staðnám17. nóvember – 24. nóvember 2026
4 klst. – 2 skipti
28.500 kr.
5 laus pláss
Staðnám21. nóvember 2026
2 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
14.900 kr.
Staðnám23. nóvember – 25. nóvember 2026
4 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
25.900 kr.
Fjarnám7. janúar – 11. mars 2027
10 klst. – 5 skipti
Snemmskráningarverð
42.900 kr.
Staðnám20. janúar – 24. febrúar 2027
10 klst. – 5 skipti
Snemmskráningarverð
48.900 kr.
Staðnám26. janúar – 16. mars 2027
16 klst. – 8 skipti
Snemmskráningarverð
38.900 kr.
Staðnám26. janúar – 16. febrúar 2027
8 klst. – 4 skipti
Snemmskráningarverð
64.900 kr.
Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.