Fara í meginmál

Að finna rödd ljóðs­ins

Hvað er það við þýð­ingu ljóða, sem gervi­greind­in virð­ist ekki ráða við?

Í heimi gervigreindar er þýðingarlistin eitt af þeim sviðum sem hætta er á að glatist í hendur tölvutækninnar. En hvað er það við ljóðlistina — í þýðingu — sem gerir að verkum að þeirri list virðist tækninni, að minnsta kosti enn sem komið er, um megn að sinna?

Á námskeiðinu verður stuðst við greinar og bókakafla úr heimi vestrænnar þýðingafræði og hún tengd þýðingasögu 20. aldar, með sérstakri áherslu á ljóðaþýðingar. Lesnar verða íslenskar ljóðaþýðingar frá því um 1950 og fram til okkar daga. Þá verður hluti námskeiðsins í ritsmiðjuformi, þar sem þátttakendum gefst færi á að kynna og ræða eigin þýðingar í vinnslu.

Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga á ljóðlist og þýðingum. Engar kröfur eru gerðar um forþekkingu eða menntun.

Staðnám

4. febrúar – 18. febrúar 2027

6 klst. – 3 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

4. febrúar kl. 19:30 – 21:30

11. febrúar kl. 19:30 – 21:30

18. febrúar kl. 19:30 – 21:30

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

33.900 kr.

Snemmskráning: 25. janúar. Almennt verð: 37.300 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Að finna rödd ljóðsins

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.