Fara í meginmál

Frá hungri til hlekkja í Kaup­manna­höfn

Hungr­að­ur maður stal færi, og annar smjörklípu. Fyrir slík brot gátu Ís­lend­ing­ar á 18. öld átt yfir höfði sér ævi­langa þrælk­un í fang­els­um Kaup­manna­hafn­ar.

Hungraður maður stal færi á meðan annar stal sér smjörklípu. Fyrir brot sem þessi gátu Íslendingar á 18. öld átt yfir höfði sér ævilanga þrælkun í fangelsum Kaupmannahafnar.

Á þessu námskeiði verður fjallað um örlög íslenskra karla og kvenna sem dæmd voru til refsivistar í Kaupmannahöfn á árunum 1730 – 1830. Mörg þeirra höfðu gerst sek um þjófnað á matvælum eða öðrum nytjahlutum, alla jafna við aðstæður þar sem afkoma þeirra og fjölskyldna þeirra var í húfi.

Sérstök áhersla verður lögð á harðindaárin 1756 – 1759 þegar lífskjör versnuðu víða um land og sífellt fleiri áttu erfitt með að sjá sér farborða. Skoðað verður hvernig harðindi, fátækt og samfélagsleg staða gátu leitt fólk inn í refsikerfið og hvaða afleiðingar dómarnir höfðu fyrir hina dæmdu og fjölskyldur þeirra.

Jafnframt verður fjallað um þróun refsinga á Íslandi, flutning sakamanna til Danmerkur og hvað beið þeirra í fangahúsum Kaupmannahafnar. Einnig verður rakin saga fyrsta fangelsisins á Íslandi, sem reist var á árunum 1761 – 1771 með þátttöku dæmdra fanga sjálfra.

Kennslan byggir á rannsóknum kennara þar sem íslenskar og danskar frumheimildir á borð við dómskjöl, fangaskrár, kirkjubækur og önnur samtímagögn varpa ljósi á líf þess fólks sem lægst var sett í samfélagi 18. og 19. aldar.

Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga á íslenskri sögu, félags- og menningarsögu, réttarsögu, ættfræði og lífskjörum almennings fyrr á tímum. Engar forkröfur eru gerðar um fyrri þekkingu.

Staðnám

16. febrúar – 23. febrúar 2027

5 klst. – 2 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

16. febrúar kl. 19:30 – 22:00

23. febrúar kl. 19:30 – 22:00

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

29.900 kr.

Snemmskráning: 7. febrúar. Almennt verð: 32.900 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Frá hungri til hlekkja í Kaupmannahöfn

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.