Fara í meginmál

Kreatín og prótein: Hvað segja vís­ind­in?

Kreatín, prótein­duft og prótein­rík­ar vörur eru víða mark­aðs­sett­ar sem lyk­ill að betri heilsu og ár­angri, en hver þarf raun­veru­lega á þeim að halda?

Á þessu námskeiði verður farið yfir hvað vísindin segja, hvaða fullyrðingar standast skoðun og hvenær vel samsett mataræði dugar fullkomlega.

Áhugi á kreatíni, próteini og öðrum fæðubótarefnum hefur aukist mikið á síðustu árum. Á sama tíma flæða upplýsingar um áhrif þeirra um samfélagsmiðla, auglýsingar og netmiðla, sem getur gert erfitt að greina á milli vísindalegra staðreynda og markaðssetningar.

Á námskeiðinu verður fjallað um próteinþörf við mismunandi aðstæður og hvernig aldur, hreyfing og styrktarþjálfun hafa áhrif á hana. Skoðað verður hvort og hvenær þörf sé á próteindufti eða öðrum próteinríkum vörum og hvernig hægt er að uppfylla próteinþörf með venjulegu mataræði.

Einnig verður farið yfir rannsóknir á kreatíni, meðal annars áhrif þess á líkamlega frammistöðu, vöðvastyrk og aðra þætti sem hafa verið rannsakaðir. Fjallað verður um hvað rannsóknir sýna með nokkurri vissu og hvar enn skortir traustar niðurstöður. Sérstök áhersla verður lögð á að greina á milli vísindalegra niðurstaðna, viðurkenndra heilsufullyrðinga og fullyrðinga sem oft birtast í markaðsefni og á samfélagsmiðlum.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist hagnýta þekkingu sem gerir þeim betur kleift að taka upplýstar ákvarðanir um notkun kreatíns, próteins og próteinvara og að miðla traustum upplýsingum til annarra.

Námskeiðið hentar heilbrigðisstarfsfólki, þjálfurum, íþróttakennurum og öðrum sem starfa við heilsueflingu, hreyfingu eða ráðgjöf um mataræði. Einnig hentar það áhugasömum almenningi sem vill öðlast betri þekkingu á hvenær bætiefni geta verið gagnleg og hvenær vel samsett mataræði er nægjanlegt.

Staðnám

26. janúar 2027

2,5 klst. – 1 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

26. janúar kl. 19:30 – 22:00

Kenn­ar­ar

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

19.900 kr.

Snemmskráning: 17. janúar. Almennt verð: 21.900 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Kreatín og prótein: Hvað segja vísindin?

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.