Fara í meginmál

Sál­rænt ör­yggi: Verk­færi fyrir vinnu­stað­inn

Hvernig sköp­um við starfs­um­hverfi þar sem fólk treyst­ir sér til að segja frá hug­mynd­um, viðra áhyggj­ur, spyrja spurn­inga og við­ur­kenna mis­tök?

Sálrænt öryggi er mikilvæg forsenda öflugs samstarfs, lærdóms og nýsköpunar. Þegar það er til staðar treystir starfsfólk sér til að tjá hugmyndir, spyrja spurninga, viðurkenna mistök og leita aðstoðar án ótta við neikvæðar afleiðingar. En hvernig verður sálrænt öryggi til og hvað getum við gert til að efla það í daglegu starfi?

Á þessu hagnýta námskeiði eru kynntar rannsóknir um mikilvægi sálræns öryggis fyrir öflugt samstarf og árangur teyma og vinnustaða. Fjallað er um þá þætti sem stuðla að sálrænu öryggi og sérstaklega hlutverki stjórnenda og leiðtoga við að innleiða og viðhalda sálrænu öryggi innan teyma.

Örar breytingar á starfsumhverfi, meðal annars vegna tilkomu gervigreindar, geta skapað óvissu og álag. Við slíkar aðstæður verður sálrænt öryggi enn mikilvægara fyrir opin samskipti, lærdóm og aðlögunarhæfni teyma.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist aukna þekkingu á sálrænu öryggi, fái í hendur hagnýt verkfæri til að efla það á sínum vinnustað og stuðla þannig að betra samstarfi, vellíðan og árangri teyma.

Námskeiðið samanstendur af fyrirlestrum og umræðum auk æfinga sem efla færni þátttakenda til að nýta þekkinguna markvisst í framhaldinu.

Námskeiðið hentar stjórnendum og öðrum sem vilja efla sálrænt öryggi, samstarf og vellíðan á vinnustað.

Staðnám

2. mars 2027

4 klst. – 1 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

2. mars kl. 8:30 – 12:30

Kenn­ar­ar

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

40.500 kr.

Snemmskráning: 21. febrúar. Almennt verð: 44.600 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Sálrænt öryggi: Verkfæri fyrir vinnustaðinn

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.