Fjármál og rekstur

Veglegt og ítarlegt námskeið um nokkra lykilþætti rekstrar. Ómissandi fyrir öll þau sem vilja öðlast hagnýta þekkingu á sviði fjármála og rekstrar.

Í námskeiðinu er lögð er áhersla á arðsemi og val á mismunandi leiðum við ábyrga stjórnun fjármuna og stýringu verkefna. Þátttakendur munu kynnast fjölbreyttum aðferðum til að takast á við helstu verkefni sem koma við sögu í rekstri fyrirtækja og stofnana.

Námskeiðið skiptist í þrjá meginhluta.

1. Skipulag og stjórnun, kennari Einar Birkir Einarsson

Í fyrsta hluta verður farið yfir skipulag fyrirtækja, hvaða tegundir skipulags henti mismunandi ytri aðstæðum og hvað einkennir fyrirtæki á mismunandi aldursskeiði þeirra. Þá verður farið yfir greiningu og flokkun verkefna og hvernig mikilvægustu verkefnin eru forgangsröðuð og meðhöndluð. Einnig verður farið í stofnun verkefnahópa sem skila bestum árangri. Þá verður kenndur grunnurinn í Agile verkefnastjórnun með áherslu á Kanban og Scrum. Lögð er áhersla á virka þátttöku og gerðar verða hagnýtar æfingar til að leggja áherslu á mikilvægustu atriði við stýringu verkefna.

2. Bókhald og ársreikningar, kennari Bjarni Frímann Karlsson

Í hluta tvö verður farið í grunnatriði við fyrirkomulag reikningshalds. Skýrður munurinn á rekstrarbókhaldi og fjárhagsbókhaldi. Í tengslum við rekstrarbókhaldið verður einkum fjallað um eðli og hegðun kostnaðar og verkbókhald. Einnig fjallað um hugtakið hagkvæmni. Hvað varðar fjárhagsbókhaldið þá verður lögð áhersla á lestur ársreikninga, uppbyggingu þeirra og innbyrðis samhengi. Einnig kynntar helstu aðferðir við greiningu þeirra, þ.e. „að lesa á milli línanna“ í ársreikningi.

3. Fjármálastjórnun, kennari Jón Arnar Baldurs

Í síðasta hluta námskeiðsins er farið yfir stjórnun fjármála, fjármögnun og áætlanagerð hvort heldur fyrir verkefni eða fyrirtæki. Þá verður farið yfir helstu hugtök í kostnaðargreiningu, kennitölur rekstra, áhættumat og virðisgreiningu. Farið verður í mat á fjárfestingum, framlegð og vextir og aðferð núvirðingar beitt. Þá verður farið yfir helstu aðferðir og sjónarhorn við verðmat fyrirtækja. Unnin eru lítil verkefni til að kynna og þjálfa helstu hugtök og aðferðir og umræður tengdar við dagleg verkefni eða störf þátttakenda sem það kjósa.

Námskeiðinu er ætlað að veita góða innsýn inn í þessa þrjá lykilþætti rekstrar.

Námskeiðið er hugsað fyrir aðila sem hafa ekki endilega menntun á sviði viðskipta en eru að taka skref eða ábyrgð í þá átt. Námskeiðið nýtist einnig vel fyrir þá sem vilja kynna sér þennan vettvang og öðlast hagnýta þekkingu á sviði fjármála og stýringar verkefna og þurfa að halda utan um kostnað og nýtingu fjármagns.

„Helsti styrkleiki námsins eru kennararnir, sem hafa mikla reynslu af atvinnulífinu. Þeim fórst ákaflega vel að miðla þeirri reynslu í bland við fræðilega umfjöllun. Einnig gagnaðist vel að þátttakendur voru flestir að fóta sig í rekstri, stórum og smáum, og það nýttist mönnum vel að bera saman bækur sínar. Þó að sá rekstur sem ég stýri sé um margt ósvipaður rekstri atvinnufyrirtækja, þá lærði ég margt í náminu sem ég nýti nú þegar í mínu starfi. Þórir Guðmundsson, deildarstjóri Rauða krossins í Reykjavík"
Stað- og fjarnám

26. september – 14. nóvember 2026

53 klst – 7 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dagskrá

26. september kl. 9–15

9. október kl. 15–19

10. október kl. 9–13

23. október kl. 15–19

24. október kl. 9–13

6. nóvember kl. 15–19

14. nóvember kl. 9–13

Kennarar
Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð
330.000 kr.
Skrá mig

Ég hef áhuga

Fjármál og rekstur

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd námskeið

Vefkökustillingar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.