StaðnámForeldraviðtalið - skýrleiki og traust
13. ágúst 2026
4 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
32.900 kr.
Réttindanámskeið fyrir sérkennara, þar sem kennt er að leggja fyrir greiningarprófið Hljóðfærni sem hugsað er fyrir börn með möguleg frávik í hljóðkerfisvitund.

Um er að ræða réttindanámskeið þar sem kennt er að leggja fyrir greiningarprófið Hljóðfærni. Markmiðið með fyrirlögn greiningarprófsins er að greina nánar vanda þeirra barna í 1. bekk grunnskóla sem grunur leikur á að séu með frávik í hljóðkerfisvitund.
Hljóðfærni er greiningarpróf sem ætlað er nemendum í 1. bekk grunnskóla og teljast í áhættuhópi vegna lesblindu. Um er að ræða einstaklingspróf sem hefur það að markmiði að greina nánar hljóðkerfisvanda nemenda og bera saman við jafnaldra. Prófið er ítarlegt og tekur á mörgum þáttum hljóðkerfisvitundar, þar á meðal eru mörg verkefni sem greina hljóðavitund. Við uppbyggingu á Hljóðfærni var leitast við að hanna próf sem væri í senn þægilegt í fyrirlögn og höfðaði til barna á umræddum aldri. Einnig var lögð áhersla á að auðvelt væri að skipuleggja íhlutun í framhaldi af niðurstöðu greiningar. Byggt er á hugmyndafræði snemmtækrar íhlutunar og kennurum leiðbeint sérstaklega með hvernig hægt er að taka á vanda þeirra barna sem eru með veikleika í hljóðkerfisvitund.
Námskeiðið er ætlað sérkennurum, talmeinafræðingum og lestrarfræðingum.
9. nóvember 2026
4 klst. – 1 skipti
Endurmenntun Háskóla Íslands
9. nóvember kl. 8:30 – 12:30
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Staðnám13. ágúst 2026
4 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
32.900 kr.
Stað- og fjarnám18. ágúst – 2. september 2026
5 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
37.900 kr.
Fjarnám16. september 2026
1,5 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
12.000 kr.
Staðnám16. september – 21. september 2026
9 klst. – 3 skipti
Snemmskráningarverð
64.900 kr.
Staðnám22. september – 13. október 2026
5 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
45.900 kr.
Fjarnám24. september 2026
3 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
27.900 kr.
Staðnám28. september – 5. október 2026
4 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
37.900 kr.
Staðnám1. október 2026
4 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
32.900 kr.
Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.