Fara í meginmál

París - líf og lystisemd­ir

5 stjörnur

Kynntu þér sögu og menn­ingu þess­ar­ar fal­legu borg­ar með stór­skemmti­legu tveggja kvölda nám­skeiði!

Farið verður í sögu Parísar og skoðaðar myndir og kort sem koma þátttakendum að góðum notum í eiginlegri Parísarferð. Þátttakendur munu fá glögga mynd af ólíkum hverfum borgarinnar og upplifa líf og lystisemdir hennar gegnum líflega frásögn Gérard Lemarquis.

Námskeiðið skiptist í tvo hluta. Í fyrri hluta verður farið í sögu Parísar og áhersla lögð á hverfi sem voru miðpunktur borgarinnar á mismunandi tímum. Latínuhverfið, Le Marais (Mýrina), Le Louvre, Le Palais Royal, Les grands boulevards (frá République til Óperunnar), Montmartre, Montparnasse, Saint-Gérmain des Prés, Les Halles og La Bastille. Velt verður upp spurningunum: Af hverju breytist tískan? Hvernig og af hverju verður nýtt hverfi miðpunktur lista og bóhemlífs?

Í seinni hluta verða farnir nokkrir leiðangrar um París. Sýndarveruleiki verður settur á svið með aðstoð korta og annarra gagna. Staldrað verður við þekkta og lítt þekkta staði. Hugmyndin er að síðar geti þátttakendur notað kort og önnur gögn námskeiðsins við raunverulegar aðstæður í eiginlegri Parísarferð.

Námskeiðið er fyrir öll þau sem hafa áhuga á París og vilja læra betur inn á borgina.

„Kenn­ar­inn var skemmti­leg­ur og sagði manni ým­is­legt sem að­eins heima­menn vita um París."

Staðnám

15. mars – 17. mars 2027

4 klst. – 2 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

15. mars kl. 20:00 – 22:00

17. mars kl. 20:00 – 22:00

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

25.900 kr.

Snemmskráning: 7. mars. Almennt verð: 28.500 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

París - líf og lystisemdir

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.