Fara í meginmál

Ind­versk menn­ing og sam­fé­lag I

Nám­skeið­ið er fyrir alla sem vilja kynn­ast ind­verskri menn­ingu og sam­fé­lagi.

Námskeiðið er fyrir alla sem vilja kynnast indverskri menningu og samfélagi. Engrar forþekkingar er krafist.

Meginmarkmið námskeiðsins er að kynna landfræðilega og menningarlega arfleifð Indlands fyrir nemendum. Í ljósi hinnar miklu menningarlegu fjölbreytni landsins verður einungis stiklað á stóru. Í þessu námskeiði verður fyrst og fremst stuðst við hljóð- og myndefni og viðfangsefnið verður nálgast á gagnvirkan hátt. Nemendum verður séð fyrir fjölbreyttu lesefni og glósum sem tengjast hverju viðfangsefni sérstaklega

Námskeiðið er kennt í 6 vikna lotu á fyrri hluta vormisseris, tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum, kl. 16:40 – 18:10 í Veröld - Húsi Vigdísar.

Viðfangsefni námskeiðsins:

  • Landfræðileg einkenni Indlands og kennileiti
  • Byggingarlist bænahúsa
  • Indverskar hátíðir
  • Ayurveda fyrri hluti
  • Ayurveda seinni hluti
  • Indversk krydd

Hæfniviðmið:

Í lok námskeiðsins hafa nemendur:

  • Öðlast skilning á sérstöðu landsins; helstu ferðamannastöðum og kennileitum
  • Öðlast skilning á bænahúsum og hugmyndinni um hið heilaga; merking ákveðinna staða í bænahúsum; hinni einstöku byggingarlist og merkingu hennar
  • Öðlast skilning á þekktum hátíðum; táknrænni merkingu þeirra og fjölbreytileika; mikilvægi samfélaga
  • Öðlast skilning á Ayurveda og mikilvægi heildstæðrar vellíðanar; kenningunni um Tri-dosha og merkingu frumkraftanna fimm
  • Öðlast skilning á hlutverki mataræðis til að jafn út dosha; Kriya yog og orkustöðvar
  • Öðlast skilning á mismunandi kryddum og lækingamætti þeirra

Námskeiðið er kennt á ensku.

Sjá kennsluskrá hér.

Staðnám

25. ágúst – 1. október 2026

18 klst. – 2 skipti

Háskóli Íslands, Veröld - hús Vigdísar

Dag­skrá

25. ágúst kl. 16:40 – 18:10

1. október kl. 16:40 – 18:10

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

5 laus pláss

Verð

100.000 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Indversk menning og samfélag I

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.