Fara í meginmál

Síð­mið­alda­sög­ur: Gísla saga, Banda­manna saga og Hrafn­kels saga

5 stjörnur

Sí­vin­sælu Ís­lend­inga­sög­u­nám­skeið­in hjá End­ur­mennt­un snúa aftur! Nú fjall­ar Ár­mann Jak­obs­son um Gísla sögu, Banda­manna sögu og Hrafn­kels sögu af stakri snilld.

Hvernig fóru höfðingjar á miðöldum með völd sín og hvernig fór fyrir þeim sem lentu upp á kant við höfðingjavaldið?

Gísla saga, Bandamanna saga og Hrafnkels saga eru allar að mörgu leyti sérstæðar meðal Íslendingasagna vegna þess að áherslan í öllum þessum sögum er á fléttuna og siðferðislegt inntak hennar en ekki er rakin saga ættar eða héraðs. Í öllum þessum sögum eru mikil átök um völd og áhrif en greinilegt er að höfundar hafa siðferðisinntak átakanna í huga. Þar sem fátt bendir til að sögurnar séu ritaðar fyrr en á síðmiðöldum verða þær settar í samhengi við menningu síðmiðalda en meginaðferðin er rækileg greining á efnisatriðum, tungumáli og sviðsetningu í sögunum.

Námskeiðið hentar öllum sem eru áhugasöm um miðaldabókmenntir, bæði nýliðum sem og þeim sem hafa áður sótt námskeið Endurmenntunar. Námskeiðið getur hentað kennurum í efstu bekkjum grunnskóla og framhaldsskóla vel en einnig leiðsögumönnum og öðrum sem tengjast menningartengdri ferðaþjónustu. Engar forkröfur eru gerðar.

„Ég hef sjald­an skemmt mér betur. Frá­bær fram­setn­ing og skemmti­leg­ar vanga­velt­ur."

Staðnám

16 klst. – 8 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

22. september kl. 19:30 – 21:30

29. september kl. 19:30 – 21:30

6. október kl. 19:30 – 21:30

13. október kl. 19:30 – 21:30

20. október kl. 19:30 – 21:30

27. október kl. 19:30 – 21:30

3. nóvember kl. 19:30 – 21:30

10. nóvember kl. 19:30 – 21:30

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

38.900 kr.

Snemmskráning: 13. september. Almennt verð: 42.800 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Síðmiðaldasögur: Gísla saga, Bandamanna saga og Hrafnkels saga

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.