Frægir flytjendur í klassískri tónlist og óperum

Á námskeiðinu verður fjallað um fræga flytjendur í klassískri tónlist og óperum.

Á námskeiðinu verður fjallað um fræga flytjendur í klassískri tónlist og óperum, þar með talið hljóðfæraleikara, söngvara, hljómsveitir og hljómsveitarstjóra. Rætt verður um flytjendur sem voru uppi áður en upptökutæknin kom til sögunnar sem og hverju þessi tækni breytti. Leikinn verður fjöldi tóndæma og farið í saumana á því hvort og þá hvernig túlkun í klassískri tónlist og óperum hefur breyst.

„Fróðleikur Magnúsar, gríðarleg vitneskja og kunnátta um efnið, kennslan og hvernig hann kemur öllu til skila á yfirvegaðan, skemmtilegan og dásamlegan hátt til okkar nemenda er það sem stendur upp úr eftir námskeiðið. Í einu orði sagt stórkostleg upplifun!"
Staðnám

12. október – 26. október 2026

6 klst – 3 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dagskrá

12. október kl. 20–22

19. október kl. 20–22

26. október kl. 20–22

Kennari
Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð
32.900 kr.

Snemmskráning til og með 4. október. Almennt verð er 36.200 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Frægir flytjendur í klassískri tónlist og óperum

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd námskeið

Vefkökustillingar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.