Fara í meginmál

Smá­sög­ur með Svika­skáld­um

5 stjörnur

Auktu færni þína í skap­andi skrif­um á þessu vand­aða 8 vikna smá­sagna­nám­skeiði!

Námskeiðið Smásögur er í samstarfi við Svikaskáld, sex kvenna skáldakollektív. Saman hafa þær gefið út fjórar ljóðabækur og skáldsöguna Olíu sem hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Á námskeiðinu lesa nemendur og rýna saman smásögur, gera ýmsar skrifaæfingar og spreyta sig á skrifum á öllu frá örsögum og smáprósum til lengri smásagna. Á námskeiðinu verður lesið efni eftir marga fremstu smásagnahöfunda heims, íslenska og erlenda. Gert er ráð fyrir að nemendur taki virkan þátt í tímum auk þess sem þeir vinna heimaverkefni og taka þátt í rithringjum á námskeiðstímanum. Á þann hátt fæst þjálfun í að veita og taka á móti gagnlegri endurgjöf og mynda samfélag skrifandi fólks.

Námskeiðið er átta vikur að lengd. Kennsla fer fram eitt kvöld í viku, en þar fyrir utan vinna þátttakendur í textum sínum heima. Í hverri kennslustund sjá tveir kennarar um kennsluna. Veitt verður endurgjöf á hagnýta verkefnavinnu.

Námskeiðið hentar þeim sem vilja eflast í skapandi skrifum smásagna.

„Þetta var allt æð­is­legt."

Staðnám

27. janúar – 17. mars 2027

24 klst. – 8 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

27. janúar kl. 19:00 – 22:00

3. febrúar kl. 19:00 – 22:00

10. febrúar kl. 19:00 – 22:00

17. febrúar kl. 19:00 – 22:00

24. febrúar kl. 19:00 – 22:00

3. mars kl. 19:00 – 22:00

10. mars kl. 19:00 – 22:00

17. mars kl. 19:00 – 22:00

Kenn­ar­ar

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

229.900 kr.

Snemmskráning: 17. janúar. Almennt verð: 252.900 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Smásögur með Svikaskáldum

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.