Netöryggi fyrirtækja - varnir og viðbrögð

4 stjörnur
Á þessu hagnýta námskeiði verður farið yfir hvernig fyrirtæki og stofnanir geta byggt upp öflugar varnir gegn netglæpum af ýmsu tagi.

Netglæpir hafa á undanförnum árum færst nær okkar daglega lífi og eru nú algengt fyrirbæri. Aðeins hluti þessara brota er tilkynntur, meðal annars vegna ótta brotaþola við álitshnekki eða annan ímyndarskaða. Því vaknar spurningin: Er fyrirtækið eða stofnunin þín með nægjanlegar varnir til að vernda mikilvægustu upplýsingar og gögn gegn netárásum?

Á þessu hagnýta námskeiði verður farið yfir hvernig fyrirtæki og stofnanir geta byggt upp öflugar varnir gegn þessum ört vaxandi vágesti. Námskeiðið veitir yfirsýn yfir eðli netglæpa, birtingarmyndir þeirra í daglegu lífi og helstu veikleika í starfsemi en glæpamenn nýta sér.

Áhersla er lögð á:

  • Að greina og skilja eðli og birtingarmyndir netglæpa í daglegu lífi og starfsemi.
  • Að þekkja helstu veikleika í starfsemi sem netglæpamenn nýta sér og hvernig hægt er að bregðast við þeim.
  • Yfirsýn yfir skipulag netöryggismála á Íslandi og helstu stoðir laga- og reglugerðarrammans, þar á meðal NIS-tilskipunina og DORA-löggjöfina.
  • Þekking á árangursríkum tólum, verklagi og raunhæfum aðgerðum sem styðja við öflugar varnir gegn netglæpum.
  • Hæfni til að leggja grunn að markvissu og skipulögðu netöryggisstarfi á eigin vinnustað.

Þá er lögð áhersla á að veita þátttakendum þekkingu og hagnýtar leiðbeiningar sem nýtast strax í starfi þeirra.

Námskeiðið er ætlað stjórnendum og starfsfólki fyrirtækja og stofnana sem bera ábyrgð á viðkvæmum upplýsingum eða gögnum. Engar forkröfur eru gerðar um þekkingu á netöryggi, upplýsingatækni eða tengdu lagaumhverfi.

„Kennari fór mjög skilmerkilega yfir viðfangsefni og svaraði öllum spurningum af kostgæfni."

Fjarnám

4. nóvember 2026

4 klst – 1 skipti

Fer fram í rauntíma á ZOOM

Dagskrá

4. nóvember kl. 8:30–12:30

Kennari
Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð
40.900 kr.

Snemmskráning til og með 26. október. Almennt verð er 45.000 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Netöryggi fyrirtækja - varnir og viðbrögð

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd námskeið

Vefkökustillingar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.