Fara í meginmál

Inn­gang­ur að sér­hæfðri krabba­meins­hjúkr­un (HJÚ173F)

Ein­inga­nám­skeið á há­skóla­stigi á vegum Há­skóla Ís­lands sem hægt er að nýta til ein­inga inn í lengra nám eða próf­gráðu.

Námskeiðið veitir yfirsýn og dýpri skilning á hjúkrun sjúklinga með krabbamein, frá forvörnum og snemmgreiningu til meðferðar, endurhæfingar og eftirfylgdar. Fjallað er um faraldsfræði og áhættuþætti krabbameina, skimun og greiningargerli, helstu meðferðarform og áhrif sjúkdóms og meðferðar á líkamlega, andlega og félagslega heilsu sjúklinga.

Hæfniviðmið:

Að námskeiði lokna skal nemandi geta:

  • Geti lýst myndun og faraldsfræði krabbameina.
  • Geti lýst stigun og meðferð krabbameina.
  • Geti lýst þekkingu á hlutverki hjúkrunarfræðinga í tengslum við greiningu og meðferð krabbameina og hafi hæfni til að styðja við sjúkling í gegnum greiningarferlið.
  • Geti gert grein fyrir hlutverki hjúkrunarfræðinga í hjúkrun krabbameinssjúklinga.
  • Hafi færni í að meta sálfélagslegt og líkamlegt ástand sjúklinga og geti greint frá niðurstöðum slíks mat á faglegan hátt til annarra heilbrigðisstarfsmanna.
  • Þekki og hafi kunnáttu til að beita viðurkenndum matstækjum (spurningalistum) við mat á ástandi sjúklinga og getur túlkað niðurstöður þeirra.
  • Hafi hæfni til að veita sjúklingum og aðstandendum sálfélagslegan stuðning og fræðslu sem tekur mið af þörfum og óskum sjúklinga og aðstandenda.
  • Hafi færni til að veita krabbameinssjúkum hjúkrunarmeðferð sem byggir á gagnreyndri þekkingu.
  • Geti greint frá helstu siðferðilegu álitamálum í tengslum við meðferð krabbameinssjúkra.

Sjá tímasetningar og staðsetningar á heimasíðu Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar undir stundatöflur.

Sjá upplýsingar um námskeiðið og hæfniviðmið í kennsluskrá HÍ.

Staðnám

Tímalengd ekki skráð

Háskóli Íslands - sjá stundatöflu

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

100.000 kr.

Umsóknarfrestur til og með 20. ágúst 2026

Skrá mig

Ég hef áhuga

Inngangur að sérhæfðri krabbameinshjúkrun (HJÚ173F)

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.