Fara í meginmál

Hjúkr­un nýrna­sjúk­linga I (HJÚ0BLF)

Ein­inga­nám­skeið á há­skóla­stigi á vegum Há­skóla Ís­lands sem hægt er að nýta til ein­inga inn í lengra nám eða próf­gráðu.

Námskeiðið veitir yfirsýn og dýpri skilning á bráðum og langvinnum nýrnasjúkdómum, faraldsfræði, áhættuþáttum, fylgikvillum og meðferð, ásamt færni í líkamsmati á einkennum tengdum vanstarfsemi í nýrum. Fjallað verður um fyrirbyggingu og seinkun framgangs nýrnasjúkdóma ásamt sértækri lyfjafræði þar sem áhersla er á lyf sem hafa áhrif á starfsemi nýrna, auk greiningar á vökva- og elektrólýta jafnvægi tengd minnkraðri starfsgetu nýrna, eftirlit og meðferðir tengdar skilunarmeðferð. Jafnframt verður fjallað um sértæk næringarvandamál nýrnasjúklinga.

Námskeiðið leggur grunn að klínískri, fræðilegri og ígrundandi færni sem nýtist við sérhæfða hjúkrun sjúklinga með nýrnasjúkdóma og við þróun hjúkrunar á þessu sviði.

Kennsla byggist á blandaðri nálgun og notast við fyrirlestra í kennslustofu og upptökum, umræður, ígrundun og verkefni.

Hæfniviðmið:

Að loknu námskeið skal nemandi geta:

  • Lýst bráðum og langvinnum nýrnasjúkdómum, ásamt því að útskýra faraldsfræði, áhættuþætti, fylgikvilla og meðferð nýrnasjúkdóma.
  • Útskýrt fyrirbyggingu og seinkun framgangs nýrnasjúkdóma.
  • Framkvæmt sérhæft líkamsmat tengdu vanstarfsemi nýrna.
  • Nefnd helstu lyfjafrábengingar tengdum vanstarfsemi nýrna og útskýrt ástæður þeirra.
  • Útskýra vökva- og elektrólýta jafnvægi tengd minnkraðri starfsgetu nýrna.
  • Útskýra eftirlit og meðferð tengd skilunarmeðferð.
  • Lýst sértækum næringarvandamálum nýrnasjúklinga og fjallað um viðeigandi úrræði.

Inntökuskilyrði; íslenskt hjúkrunarleyfi og BS próf.

Sjá tímasetningar og staðsetningar á heimasíðu Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar.

Staðnám

Tímalengd ekki skráð

Háskóli Íslands - sjá stundatöflu

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

100.000 kr.

Umsóknarfrestur til og með 20. ágúst 2026

Skrá mig

Ég hef áhuga

Hjúkrun nýrnasjúklinga I (HJÚ0BLF)

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.