StaðnámRekstraráætlun - gerð, uppbygging, gervigreind
24. september – 25. september 2026
8 klst. – 2 skipti
80.200 kr.
Lærðu hvernig beita má togstreitugreiningu til að ná fram varanlegum umbótum í opinberum rekstri.

Markmið námskeiðsins er að efla hæfni þátttakenda til að beita skipulegri nálgun með stuðningi gervigreindar við greiningu og ákvarðanatöku gagnvart flóknum viðfangsefnum.
Á námskeiðinu er fjallað um hvernig á að leysa úr togstreitu. Togstreita milli gagnstæðra leiða til að ná sama markmiði grundvallast ávallt á óskýrleika í röklegum tengslum milli aðgerðar, tilgangs hennar og markmiðsins sem stefnt er að. Þessi togstreita er oft orsök þess að neikvæðar rótarorsakir sem leiða til óæskilegra afleiðinga verða viðvarandi. Þannig er togstreitugreiningin gjarna næsta skrefið þegar rökleg rótargreining hefur verið unnin. En togstreitugreiningu má einnig beita sjálfstætt til að leysa úr ágreiningi sem þegar er kominn fram á yfirborðið.
Á námskeiðinu leysa þátttakendur úr vandamálum með aðstoð togstreitugreiningar. Þátttakendur sem lokið hafa námskeiði um rótargreiningu og komist að rótarorsökum sem grundvallast á togstreitu leysa úr henni á námskeiðinu en aðrir þátttakendur mæta til leiks með eigið vandamál til að vinna úr. Hér getur hvort sem er verið um að ræða togstreitu á vinnustaðnum eða í persónulegu lífi.
Námskeiðið hefst á kynningu á togstreitugreiningunni. Að því loknu er unnið hópverkefni til að æfa beitinguna og nokkur dæmi um greiningar rakin. Að því loknu taka nemendur til við að leysa eigin viðfangsefni með aðstoð kennara og leiðbeinenda. Við beitum gervigreind til að aðstoða okkur við að vinna greiningarnar, betrumbæta orsakatengsl og benda á ómeðvitaðar fyrirframgefnar forsendur. Við skoðum einnig hvernig gervigreind getur nýst til að bæta ferla og auka skilvirkni.
Námskeiðið er ætlað stjórnendum og sérfræðingum í opinberum rekstri. Það er sérstaklega gagnlegt fyrir stofnanir sem eru að hefja innleiðingu gervigreindar því lögð er sérstök áhersla á áhrif hennar á skipulag, stjórnun og mönnun.
Önnur námskeið í námskeiðaröðinni:
2. nóvember 2026
4 klst. – 1 skipti
Endurmenntun Háskóla Íslands
2. nóvember kl. 8:30 – 12:30
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Staðnám24. september – 25. september 2026
8 klst. – 2 skipti
80.200 kr.
Stað- og fjarnám26. september – 14. nóvember 2026
53 klst. – 7 skipti
330.000 kr.
Staðnám29. september – 1. október 2026
7 klst. – 2 skipti
74.700 kr.
Staðnám5. október – 7. október 2026
8 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
72.900 kr.
Staðnám5. október – 6. október 2026
8 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
72.900 kr.
Staðnám5. október – 6. október 2026
6 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
58.700 kr.
Staðnám6. október 2026
3 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
29.500 kr.
Staðnám7. október – 8. október 2026
6 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
59.900 kr.
Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.