StaðnámHámörkum árangur með gervigreind - greining og ákvarðanir
8. október – 9. október 2026
8 klst. – 2 skipti
75.800 kr.
2 laus pláss
Lærðu hvernig beita má lausna- og hindranagreiningu til að ná fram varanlegum umbótum í rekstri.

Markmið námskeiðsins er að efla hæfni þátttakenda til að beita skipulegri nálgun með stuðningi gervigreindar við greiningu og ákvarðanatöku gagnvart flóknum viðfangsefnum.
Þegar umbótaverkefni renna út í sandinn er ástæðan oftast sú að þegar hugmynd að lausn liggur fyrir er strax hafist handa við framkvæmdina án þess að sannprófa fyrst hvernig, nákvæmlega, hún leiðir að markmiðinu, hvaða hnökrar gætu komið fram á leiðinni og hvernig við leysum úr þeim. Lausnagreining er tækið sem við notum til að sannprófa hugmynd að lausn. Þetta gerum við með því að rekja okkur, skref fyrir skref frá lausninni að markmiðinu með formlegri greiningu orsaka og afleiðinga.
Þegar lausnin hefur verið sannprófuð liggur ljóst fyrir allt sem gera þarf til að tryggja að hún leiði óhjákvæmilega að markmiðinu. Lausnir eru hins vegar misflóknar í framkvæmd. Sé lausn flókin í framkvæmd þarf oft að greina nákvæmlega hvernig hún verður framkvæmd og hvaða hindranir standa í vegi framkvæmdarinnar. Þetta er lokaskrefið í röklegu umbótaferli og nefnist hindranagreining.
Þegar um nýtt verkefni er að ræða sem ekki hefur verið reynt áður, og ef markmiðið liggur skýrt fyrir er hægt að fara beint í lausnagreininguna. Ef verkefnið snýst um að leysa rótgróin vandamál er lausnagreiningin beint framhald af röklegri rótargreiningu og eftir atvikum togstreitugreiningu.
Hafi þátttakendur lokið fyrri námskeiðum er haldið áfram með verkefnið sem þar var unnið. Aðrir nemendur mæta til leiks með eigin hugmynd að verkefni.
Námskeiðið er hluti af röð fjögurra sjálfstæðra námskeiða sem ber yfirskriftina Varanlegar umbætur í rekstri - með gervigreind.
Námskeiðið er ætlað stjórnendum og sérfræðingum í opinbera- og einkageiranum. Það er sérstaklega gagnlegt fyrir fyrirtæki og stofnanir sem eru að hefja innleiðingu gervigreindar því lögð er sérstök áhersla á áhrif hennar á skipulag, stjórnun og mönnun.
Önnur námskeið í námskeiðaröðinni:
6. nóvember – 13. nóvember 2026
12 klst. – 3 skipti
Endurmenntun Háskóla Íslands
6. nóvember kl. 8:30 – 12:30
9. nóvember kl. 8:30 – 12:30
13. nóvember kl. 8:30 – 12:30
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Staðnám8. október – 9. október 2026
8 klst. – 2 skipti
75.800 kr.
2 laus pláss
Staðnám9. október 2026
5 klst. – 1 skipti
Fullbókað – skrá á biðlista
51.600 kr.
Staðnám12. október – 18. nóvember 2026
35 klst. – 10 skipti
Fullbókað – skrá á biðlista
299.000 kr.
Staðnám15. október 2026
4 klst. – 1 skipti
45.700 kr.
Staðnám19. október – 20. október 2026
8 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
68.900 kr.
Staðnám19. október – 20. október 2026
5 klst. – 2 skipti
Fullbókað – skrá á biðlista
46.900 kr.
Fjarnám19. október – 20. október 2026
8 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
72.900 kr.
Stað- og fjarnám19. október – 29. október 2026
10 klst. – 4 skipti
Snemmskráningarverð
74.900 kr.
Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.