StaðnámSkapandi skrif - fyrstu skrefin
2. nóvember – 30. nóvember 2026
10 klst. – 5 skipti
Snemmskráningarverð
53.900 kr.
Nafn Sigvalda Thordarson heyrist víða í íslensku samfélagi - en hver er maðurinn á bak við Sigvaldahúsin?

Á þessu námskeiði fléttast saman einstök innsýn í lítt kannaðan þátt í þróun byggingarlistar á Íslandi á 20. öld og saga tveggja kynslóða arkitekta, feðginanna Sigvalda og Albínu Thordarson.
Sigvaldi Thordarson (1911–1964) er einn merkasti listamaður sinnar kynslóðar og sá arkitekt eftirstríðsáranna sem hvað kunnastur er fyrir verk sín. Sigvaldi átti veigamikinn þátt í framþróun húsagerðar hér á landi á 5. og 6. áratug 20. aldar og innleiddi mikilvægar nýjungar í mótun byggðar og hönnun íbúðarhúsnæðis. Verk hans bera skýr höfundareinkenni listrænnar hönnunar og áherslu á hagkvæmni. Einnig í notkun mismunandi lita og efna á afmarkaða fleti til að árétta tengsl og samhengi ytra forms og innri gerðar. Íbúðir í Sigvaldahúsum þóttu framúrskarandi á sínum tíma og njóta enn mikillar virðingar, enda er nafn arkitektsins er oft sérstaklega tilgreint í fasteignaauglýsingum.
Sigvaldi var alla tíð eindreginn vinstrimaður og friðarsinni. Stjórnmálaskoðanir hans höfðu áhrif á þau verkefni sem honum buðust og byggingarlist hans verður ekki skilin án vitundar um samfélagslega hugsjón hans. Sigvalda Thordarson má með réttu kalla „arkitekt íslenskrar alþýðu“, enda þótt hann hafi í reynd verið arkitekt allra stétta.
Rauður þráður í ævistarfi Sigvalda var hönnun hagkvæmra og vandaðra íbúða fyrir alla hópa samfélagsins. Annar snar þáttur var hönnun orkumannvirkja, en þau eru mikilvægur vitnisburður um þróun íslensks samfélags og byggingarlistar á 20. öld.
Námskeiðið er haldið í tilefni af útkomu bókar um Sigvalda í haust þar sem dóttir hans, arkitektinn Albína Thordarson, rekur sögu föður síns og verka hans eins og hún sjálf upplifði hana. Bókin er samvinnuverkefni Albínu og Péturs H. Ármannssonar arkitekts sem ritar aðfaraorð og kafla um náms- og mótunarár Sigvalda. Þátttakendum býðst að kaupa bókina um Sigvalda Thordarson á tilboðsverði hjá kennurum námskeiðsins. Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga á byggingarlist, hönnun, mannvirkjagerð, þróun íbúðarhúsnæðis og íslenskri samfélagssögu á 20. öld.
11. nóvember – 18. nóvember 2026
5 klst. – 2 skipti
Endurmenntun Háskóla Íslands
11. nóvember kl. 19:30 – 22:00
18. nóvember kl. 19:30 – 22:00
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Staðnám2. nóvember – 30. nóvember 2026
10 klst. – 5 skipti
Snemmskráningarverð
53.900 kr.
Staðnám2. nóvember – 16. nóvember 2026
7,5 klst. – 3 skipti
Snemmskráningarverð
41.500 kr.
Staðnám3. nóvember – 24. nóvember 2026
8 klst. – 4 skipti
Snemmskráningarverð
44.900 kr.
Staðnám4. nóvember – 11. nóvember 2026
5 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
29.900 kr.
Staðnám7. nóvember 2026
2 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
14.900 kr.
Staðnám9. nóvember – 23. nóvember 2026
6 klst. – 3 skipti
Snemmskráningarverð
36.900 kr.
Staðnám14. nóvember 2026
2 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
14.900 kr.
Stað- og fjarnám17. nóvember – 5. desember 2026
24 klst. – 2 skipti
125.100 kr.
Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.