Fara í meginmál

Sjö­undár­mál­ið - sekt eða sak­leysi?

Var Bjarni Bjarna­son sak­laus þegar hann var tek­inn af lífi árið 1805 fyrir morð­in á Sjö­undá?

Hvernig varð dauðadómur yfir almúgamanni að veruleika og hvaða hlutverki gegndu yfirvöld, samfélag og aðstæður í þeirri sögu?

Á þessu námskeiði verður fjallað um eitt þekktasta sakamál Íslandssögunnar og kynnt ný rannsókn sem birt var í bókinni Dauðadómurinn (2024), en rannsóknin varpar óvæntu ljósi á sögu Bjarna og meðferð máls hans. Sjónum verður ekki aðeins beint að því hvað gerðist á Sjöundá heldur einnig að því hvernig saga Bjarna hefur verið sögð, hvaða heimildir liggja að baki henni og hvað gerist þegar við lesum þær upp á nýtt.

Kynntar verða rannsóknaraðferðir og fræðileg nálgun sem liggur að baki bókinni, auk þess sem skoðað verður hvernig ólíkar heimildir, vettvangsrannsóknir og efnislegar minjar geta varpað ljósi á líf almúgafólks á síðari hluta 18. aldar. Að lokum verður tekist á við þá spurningu sem enn vekur deilur: Var Bjarni sekur?

Á fyrsta kvöldi námskeiðsins verður farið yfir Sjöundármálið frá upphafi þess árið 1802 og þar til Bjarni var tekinn af lífi árið 1805. Saga Steinunnar Sveinsdóttur verður einnig skoðuð og rýnt í hvernig Sjöundármál hafa verið túlkuð í bókum, greinum og leikritum.

Á öðru kvöldi námskeiðsins verður farið yfir hvernig hægt er að skoða sögu sem heimildir segja ekki alla. Skoðað verður hvernig rannsóknin að baki bókinni Dauðadómurinn og sú fræðilega nálgun sem þar var notuð getur hjálpað okkur að sjá fortíðina frá nýju sjónarhorni.

Á lokakvöldi námskeiðsins verður rýnt í hvað gerðist í raun á Sjöundá árið 1802. Farið verður yfir meðferð málsins, heimildirnar og þær efasemdir sem vaknað hafa um sekt Bjarna. Í lok kvölds fá þátttakendur sjálfir að takast á við spurninguna: Var Bjarni sekur?

Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga á íslenskri sögu, samfélagi og lífi almúgafólks á árnýöld. Námskeiðið gæti einnig hentað leiðsögumönnum. Engrar sérstakrar forþekkingar er krafist, en æskilegt er að þátttakendur hafi með sér fartölvu eða skriffæri, sérstaklega síðasta námskeiðskvöldið. Mælt er með að þátttakendur kynni sér bækurnar Tugthúsið eftir Hauk Má Helgason, Þessi frægu glæpamál eftir Jón Torfason og Má Jónsson og Dauðadóminn (til á Storytel) eftir Steinunni Kristjánsdóttur.

Staðnám

22. október – 5. nóvember 2026

6 klst. – 3 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

22. október kl. 19:30 – 21:30

29. október kl. 19:30 – 21:30

5. nóvember kl. 19:30 – 21:30

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

33.900 kr.

Snemmskráning: 12. október. Almennt verð: 37.300 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Sjöundármálið - sekt eða sakleysi?

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.