Stað- og fjarnámÍslandssaga
20. október – 14. nóvember 2026
21 klst. – 2 skipti
125.100 kr.
Hugsum við um miðaldir sem myrkar, gráar og einangraðar? Ný rannsókn sýnir allt aðra mynd – litríkt samfélag og sterk tengsl Íslands við umheiminn.

Hugtakið „hinar myrku miðaldir“ (e. Dark Ages) hefur lengi verið notað um fyrri hluta miðalda, einkum tímabilið frá 5. til 10. aldar eftir fall Vestur-Rómaveldis. Litið var svo á að eftir fall þess hefði orðið afturför í menningarlegri og vísindalegri framþróun. Núorðið er hugtakið „hinar myrku miðaldir“ almennt talið villandi og úrelt, enda sýna rannsóknir síðustu ára að miðaldir voru tímabil sköpunar og framþróunar. Þetta á ekki síst við um textíl- og handritagerð, gull- og silfursmíði og litríkar myndskreytingar bygginga og gripa.
Á þessu námskeiði verður fjallað um textíl- og handritagerð hérlendis á miðöldum og sjónum einkum beint að Þingeyraklaustri (1133–1551) og Kirkjubæjarklaustri (1186–1548). Klaustrin voru mikilvægar miðstöðvar textíl- og handritagerðar og tengdust víðfeðmu neti verslunar og menningarsamskipta utan Íslands. Efni námskeiðsins byggir á nýlegum rannsóknum þar sem beitt hefur verið háþróaðri röntgen- og litagreiningartækni (XRF og FORS) til að rannsaka litarefni í klæðum, handritum og kirkjugripum. Niðurstöðurnar sýna að mörg litarefni og hráefni voru innflutt og varpa nýju ljósi á tengsl Íslands við aðrar þjóðir á miðöldum. Fjallað verður um þessar rannsóknarniðurstöður og þá nýju sýn sem þær gefa á íslenskt miðaldasamfélag, þar sem litirnir verða leið til að skilja betur menningu, viðskipti og alþjóðleg tengsl þess tíma.
Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga á miðaldasögu, myndmáli, textíl, handritum, klaustrum eða tengslum Íslands við umheiminn. Engar forkröfur eru gerðar.
17. nóvember – 24. nóvember 2026
4 klst. – 2 skipti
Endurmenntun Háskóla Íslands
17. nóvember kl. 19:30 – 21:30
24. nóvember kl. 19:30 – 21:30
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Stað- og fjarnám20. október – 14. nóvember 2026
21 klst. – 2 skipti
125.100 kr.
Staðnám22. október – 5. nóvember 2026
6 klst. – 3 skipti
37.300 kr.
Staðnám2. nóvember – 30. nóvember 2026
10 klst. – 5 skipti
Snemmskráningarverð
53.900 kr.
Staðnám2. nóvember – 16. nóvember 2026
7,5 klst. – 3 skipti
Snemmskráningarverð
41.500 kr.
Staðnám3. nóvember – 24. nóvember 2026
8 klst. – 4 skipti
Snemmskráningarverð
44.900 kr.
Staðnám4. nóvember – 11. nóvember 2026
5 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
29.900 kr.
Staðnám7. nóvember 2026
2 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
14.900 kr.
Staðnám9. nóvember – 23. nóvember 2026
6 klst. – 3 skipti
Snemmskráningarverð
36.900 kr.
Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.