Fara í meginmál

Hátta­vit­inn: Ljóða­smiðja fyrir for­vitna

Ert þú skúffu­skáld? Lang­ar þig að fræð­ast um hvernig ljóð verða til og fá inn­sýn í ólík­ar að­ferð­ir, hætti og leiki í ljóða­gerð?

Á þessu námskeiði fá þátttakendur tækifæri til að kynnast fjölbreyttum formum kveðskapar, allt frá hefðbundnum rímnaháttum til nútímaljóða. Jafnframt gefst þátttakendum kostur á að spreyta sig á ljóðagerð í styðjandi umhverfi þar sem áhersla er lögð á samtal og uppbyggilega endurgjöf.

Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga á ljóðum, hvort sem þeir hafa áður fengist við ljóðagerð eða eru að stíga sín fyrstu skref. Þátttakendum er velkomið að taka með sér fartölvu, en það er ekki nauðsynlegt. Stuðst verður við bókina Háttavitinn eftir Pétur Blöndal og er eintak af bókinni innifalið í námskeiðsgjaldi. Bókin hefur að geyma yfirlit hátta, aðferða og leikja í ljóðum.

Staðnám

27. október – 10. nóvember 2026

6 klst. – 3 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

27. október kl. 19:30 – 21:30

3. nóvember kl. 19:30 – 21:30

10. nóvember kl. 19:30 – 21:30

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

64.900 kr.

Snemmskráning: 18. október. Almennt verð: 71.400 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Háttavitinn: Ljóðasmiðja fyrir forvitna

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.