Fara í meginmál

Vatna­jök­ull - nátt­úra í sí­felldri mótun

Kynntu þér Vatna­jök­ul, stærsta jökul Evr­ópu, þar sem magn­þrung­in nátt­úru­öfl mæta ein­stakri feg­urð!

Vatnajökull er heimur andstæðna þar sem eldur og ís mætast. Undir þessum stærsta jökli Íslands krauma virk eldfjöll, jarðhiti og kraftar sem hafa mótað landslagið í þúsundir ára með samspili jökulsins og eldvirkninnar. Á þessu námskeiði kynnumst við sögu, vísindum og undrum Vatnajökuls og þeim áhrifum sem loftslag, eldvirkni og mannlíf hafa haft á þetta einstaka svæði.

Farið verður yfir helstu grunnatriði í jöklafræði, myndun jökla, eðli jökulíss og hreyfingu jökla og framhlaup, útskýrt hvernig jökullinn skiptist í safnsvæði og leysingasvæði, hugtakið jafnvægislínu, ísaskil og vatnaskil. Farið verður yfir sögu jöklabreytinga og skyggnst inn í framtíðina með því að skoða niðurstöður úr jöklalíkönum sem herma eftir viðbrögðum jökla við loftslagsbreytingum.

Fjallað verður um eldvirkni undir Vatnajökli, meðal annars í Öræfajökli, Bárðarbungu og Grímsvötnum, og hvernig samspil elds og ísa veldur jökulhlaupum og mótar landslagið. Einnig verður rýnt í myndun Jökulsárgljúfra og önnur stórbrotin náttúrufyrirbæri sem urðu til í hamfaraflóðum á nútíma.

Stiklað verður á stóru um sögu jöklarannsókna á Vatnajökli, frá 18. og 19. öld til nútímans; landmótun, íssjármælingar, afkomumælingar og langtímavöktun á breytingum jökulsins. Sérstök áhersla verður lögð á áhrif loftslagsbreytinga, hvernig skriðjöklar hörfa og jökullón myndast og breytingar á farvegum jökuláa.

Einnig verður fjallað um sögur fólksins sem bjó í skugga jökulsins, þjóðsögur, landnám og áhrif jökulsins á menningu og ferðamennsku sem hefur tekið miklum breytingum á 21. öldinni. Að lokum verður fjallað um Vatnajökulsþjóðgarð og UNESCO-heimsarfinn, verndargildi svæðisins, rannsóknir, ferðaþjónustu, skála og aðra innviðauppbyggingu.

Námskeiðið hentar öllum sem hafa áhuga á íslenskri náttúru og vilja kynnast stærsta jökli Evrópu, sögu hans og framtíðarhorfum. Það nýtist jafnt leiðsögumönnum, starfsfólki í ferðaþjónustu, kennurum, nemendum og náttúruunnendum.

Staðnám

19. nóvember – 26. nóvember 2026

5 klst. – 2 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

19. nóvember kl. 19:30 – 22:00

26. nóvember kl. 19:30 – 22:00

Kenn­ar­ar

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

29.900 kr.

Snemmskráning: 9. nóvember. Almennt verð: 32.900 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Vatnajökull - náttúra í sífelldri mótun

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.