Fara í meginmál

Glæpa­saga: Frá hug­mynd til hand­rits

Lang­ar þig að skrifa spenn­andi glæpa­sögu? Á þessu nám­skeiði lærir þú hvernig góð spennu­saga verð­ur til, frá fyrstu hug­mynd að hand­riti.

Þátttakendur fá hagnýta leiðsögn í ritun spennu- og glæpasagna. Fjallað verður um hugmyndavinnu, persónusköpun, uppbyggingu fléttu og spennu, sögusvið og samtöl, auk þess sem skoðað verður hvað gerir góða glæpasögu eftirminnilega. Kennarar deila reynslu sinni af ritun og útgáfu glæpasagna og við fáum góðan gest. Einnig verður fjallað um hlutverk ritstjórnar í sköpunarferlinu og hvernig höfundar og ritstjórar vinna saman að því að styrkja texta.

Námskeiðið fer fram í formi spjalls og æfinga/verkefna. Þátttakendur vinna á eigin fartölvu í tímum og eru hvattir til að vinna áfram með eigin skrif milli tíma, þótt ekki sé um formlega heimavinnu að ræða. Gott er að hafa lesið bókina Lokar augum blám eftir Margréti Höskuldsdóttur áður en námskeiðið hefst þar sem vitnað verður í hana á námskeiðinu.

Námskeiðið hentar bæði þeim sem eru með hugmynd að glæpasögu og þeim sem þegar eru komin af stað með skrif og vilja fá verkfæri og innblástur til að þróa verkið áfram.

Staðnám

26. janúar – 16. febrúar 2027

8 klst. – 4 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

26. janúar kl. 20:00 – 22:00

2. febrúar kl. 20:00 – 22:00

9. febrúar kl. 20:00 – 22:00

16. febrúar kl. 20:00 – 22:00

Kenn­ar­ar

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

64.900 kr.

Snemmskráning: 17. janúar. Almennt verð: 71.400 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Glæpasaga: Frá hugmynd til handrits

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.