StaðnámRekstur og heilbrigðisþjónusta (HJÚ142F)
Tímalengd ekki skráð
100.000 kr.
Á námskeiðinu fær fagfólk innsýn í reynslu barna og foreldra þegar foreldri veikist.

Þegar foreldri glímir við geðræn veikindi hefur það áhrif á alla fjölskylduna. Á námskeiðinu fær fagfólk innsýn og tækifæri til að efla hæfni sína í að mæta fjölskyldum af næmni, öryggi og faglegri þekkingu. Lögð er áhersla á að styrkja fagfólk í að skapa traust, opna samtalið og stuðla að bættri líðan allra í fjölskyldunni.Lögð er áhersla á hvernig fagfólk getur byggt upp traust, aukið skilning og skapað umhverfi sem styður við fjölskylduna.
Á námskeiðinu er unnið út frá hugmyndafræði Our Time Charity í Bretlandi, sem á rætur að rekja til vinnu Dr. Alan Cooklin, geðlæknis og fjölskyldufræðings.
Á námskeiðinu fær fagfólk innsýn í reynslu barna og foreldra þegar foreldri veikist. Fjallað verður um fræðin sem varpa ljósi á hvernig börn og foreldrar upplifa veikindi. Hvernig best er að mæta fjölskyldum í þessum aðstæðum og hvernig við getum byggt upp traust og tekið samtalið sem stuðlar að opnum samskiptum, auknum skilningi og bættri líðan allra í fjölskyldunni.
Námskeiðið byggir á fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu. Áhersla er lögð á hagnýta þjálfun á námskeiðinu og virkni þátttakenda því nauðsynleg.
Námskeiðið er ætlað fagfólki í heilbrigðis-, félags- og menntakerfinu sem vinnur með börnum og fjölskyldum, svo sem sálfræðingum, félagsráðgjöfum, teymisstjórum, kennurum, þroskaþjálfum, hjúkrunarfræðingum og öðrum sem starfa með foreldrum eða börnum í viðkvæmum aðstæðum.
12. nóvember 2026
6 klst. – 1 skipti
Endurmenntun Háskóla Íslands
12. nóvember kl. 9:00 – 15:30
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
StaðnámTímalengd ekki skráð
100.000 kr.
StaðnámTímalengd ekki skráð
100.000 kr.
StaðnámTímalengd ekki skráð
100.000 kr.

Tímalengd ekki skráð
100.000 kr.
Staðnám22. september – 13. október 2026
5 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
45.900 kr.
Fjarnám24. september 2026
3 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
27.900 kr.
Staðnám28. september 2026
7 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
46.900 kr.
Staðnám6. október – 13. október 2026
7,5 klst. – 3 skipti
Snemmskráningarverð
49.900 kr.
Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.