Fara í meginmál

Rekst­ur og heil­brigð­is­þjón­usta HJú142F

Markmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn í fræðilega nálgun ýmissa hagrænna þátta sem hafa áhrif á starfsumhverfi í heilbrigðisþjónustu. Þessir þættir eru óumflýjanlegir í öllum rekstri stórum og smáum, hvort sem er opinber rekstur eða einkarekstur. Í námskeiðinu er farið yfir með hvaða hætti þættirnir birtast og hvernig hægt er að hafa áhrif á þá rekstrinum til góða. Meðal hugtaka sem farið verður yfir:

  • Framboð, eftirspurn, framleiðsluþættir, teygni
  • Breytilegur-, fastur-, beinn- og óbeinn kostnaður.
  • Áhrif skattheimtu og utanaðkomandi áhrif. Einkagæði og sameiginleg gæði.
  • Viðskipti og hlutfallslegir yfirburðir. Hringrás efnahagslífsins.
  • Framfærslukostnaður, vísitölur og þjóðhagsreikningar.
  • Fjárhagsbókhald, rekstrar- og efnahagsreikningur.
  • Rekstrarbókhald, mismunandi rekstrargreiningar.

Hæfniviðmið:Í lok námskeiðs hafi nemandi:

  • Öðlast skilning á því að viðfangsefni hagfræðinnar koma við sögu í daglegu lífi og að hagfræðilegum aðferðum er stöðugt beitt við ákvarðanatöku án þess að við gerum okkur grein fyrir því.
  • Öðlast hæfni til að komast að rökréttri niðurstöðu um viðfangsefni í lífi og starfi með því að beita aðferðum hagfræðinnar

Sjá tímasetningar og staðsetningar á heimasíðu Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar undir stundatöflur.

Staðnám

Tímalengd ekki skráð

Háskóli Íslands - sjá stundatöflu

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

100.000 kr.

Umsóknarfrestur til og með 21. ágúst 2026

Skrá mig

Ég hef áhuga

Rekstur og heilbrigðisþjónusta HJú142F

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.