Fara í meginmál

Stuðn­ing­ur við full­orðna í sam­fé­lag­inu (HJÚ0BGF)

Ein­inga­nám­skeið á há­skóla­stigi á vegum Há­skóla Ís­lands sem hægt er að nýta til ein­inga inn í lengra nám eða próf­gráðu.

Í þessu námskeiði er áhersla á uppbyggingu þekkingar og færni á faglegu mati og viðbrögðum aðstæðna hjá eldra fólki í samfélaginu. Nemendur nýta þessa þekkingu við útfærslu á stuðningi og umönnun þeirra sem búa við heilsubrest og/eða færniskerðingu vegna langvinnra veikinda eða öldrunarbreytinga. Unnið verður með útfærslu á hagnýtingu gagnreyndrar þekkingar sem finna má í klínískum leiðbeiningum og fræðilegum samantektum. Nemendur fá þjálfun í að hanna stuðningsleiðir við ólíkar aðstæður í þjónustu; t.d. á göngudeildum, í heilsugæslu og í heimaþjónustu með áherslu á fólk með langvinnan heilsuvanda og/eða hrumt eldra fólk. Fjallað verður um áhrif aðstæðna á heimili, skipulag þjónustu, samþættingu og notkun velferðartækni.

Hæfniviðmið:Í lok námskeiðsins á nemandi að hafa tileinkað sér eftirfarandi hæfni og leikni:

Geta lýst áhrifum aðstæðna í samfélaginu og á heimili á líðan og daglegt líf fullorðinna sem takast á við heilsufarserfiðleika eða minnkaðan þrótt til athafna daglegs lífs.Geta útskýrt og nýtt tæknilegar lausnir sem auðvelda fólki að búa heima.Geta sett fram og veitt viðeigandi stuðnings- og umönnunaráætlanir fyrir fjölveika fullorðna einstaklinga.Geta aflað sér og hagnýtt sérhæfða þekkingu og tölulegar upplýsingar við skipulagningu og framkvæmd þjónustu við fullorðna einstaklinga sem búa í samfélaginu.Geta sýnt virðingu fyrir reynsluheimi fullorðinna og langveikra einstaklinga sem búa í samfélaginu og fjölskyldna þeirra og vera fær um að vera talsmaður þeirra.

Sjá tímasetningar og staðsetningar á heimasíðu Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar undir stundatöflur.

Sjá upplýsingar um námskeiðið og hæfniviðmið í kennsluskrá HÍ.

Staðnám

Tímalengd ekki skráð

Háskóli Íslands - sjá stundatöflu

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

100.000 kr.

Umsóknarfrestur til og með 20. ágúst 2026

Skrá mig

Ég hef áhuga

Stuðningur við fullorðna í samfélaginu (HJÚ0BGF)

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.