Fara í meginmál

Rök­leg rót­ar­grein­ing - með gervi­greind

Lærðu hvernig beita má rök­legri rót­ar­grein­ingu til að ná fram var­an­leg­um um­bót­um í op­in­ber­um rekstri.

Markmið námskeiðsins er að efla hæfni þátttakenda til að beita skipulegri nálgun með stuðningi gervigreindar við greiningu og ákvarðanatöku gagnvart flóknum viðfangsefnum.

Á námskeiðinu er fjallað um hvernig á að finna rótarorsakir viðvarandi vandamála. Við byrjum á að átta okkur á markmiðinu - þeirri æskilegu stöðu sem við viljum ná, svo greinum við misræmið milli þess og núverandi stöðu og að lokum beitum við nákvæmri röklegri greiningu orsaka og afleiðinga til að finna rótarorsakirnar að baki þessu misræmi.

Nemendur koma með eigin viðfangsefni, viðvarandi kerfislæg(t) vandamál sem illa hefur gengið að leysa. Heppilegast er að 2 – 3 aðilar frá hverri stofnun taki þátt í námskeiðinu. Námskeiðið hefst á þjálfun í reglunum að baki greiningu orsaka og afleiðinga. Að því loknu er unnið hópverkefni til að æfa beitinguna og nokkur dæmi um greiningar rakin. Að því loknu taka nemendur til við að leysa eigin viðfangsefni með aðstoð kennara og leiðbeinenda. Við beitum gervigreind til að aðstoða okkur við að vinna greiningarnar, betrumbæta orsakatengsl og benda á ómeðvitaðar fyrirframgefnar forsendur.

Námskeiðið er hluti af röð fjögurra sjálfstæðra námskeiða sem ber yfirskriftina Varanlegar umbætur í opinberum rekstri.

Námskeiðið er ætlað stjórnendum og sérfræðingum í opinberum rekstri. Það er sérstaklega gagnlegt fyrir stofnanir sem eru að hefja innleiðingu gervigreindar því lögð er sérstök áhersla á áhrif hennar á skipulag, stjórnun og mönnun.

Staðnám

26. október – 30. október 2026

8 klst. – 2 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

26. október kl. 8:30 – 12:30

30. október kl. 8:30 – 12:30

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

68.900 kr.

Snemmskráning: 16. október. Almennt verð: 75.800 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Rökleg rótargreining - með gervigreind

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.