StaðnámAð skrifa fyrir unga lesendur
1. september – 10. september 2026
10 klst. – 4 skipti
Snemmskráningarverð
79.900 kr.
Langar þig að fræðast um frændur okkar á Hjaltlandseyjum? Vissir þú að þar lifa enn sterk norræn menningaráhrif og tungumál sem er skylt okkar ástkæra ylhýra?

Á þessu námskeiði verður stiklað á stóru yfir sögu Hjaltlandseyja, nágranna Íslands sem margir þekkja helst af sakamálabókum Ann Cleeves og samnefndum sjónvarpsþáttum. Eyjarnar hafa þó verið byggðar frá miðsteinöld og saga samfélagsins því löng og rík. Í dag tilheyra Hjaltlandseyjar Skotlandi, en samfélagið þar er mun norrænna en margir gera sér grein fyrir. Menning eyjanna er að mörgu leyti lík norskri og íslenskri menningu og endurspeglar sterk norræn tengsl í gegnum aldirnar.
Á fyrra kvöldinu verður farið stuttlega yfir sögu eyjanna, hvernig þær byggðust og urðu peð í samningum konunga. Einnig verður fjallað um jarðfræði, dýralíf og lífsviðurværi eyjaskeggja í gegnum tíðina og hvers má vænta þegar eyjarnar eru heimsóttar í dag.
Á seinna kvöldinu verður menningu Hjaltlendinga gerð nánari skil, meðal annars mótekju, ullarvinnslu og prjónahefð, þjóðtrú og tengslum við Ísland. Fjallað verður um viðburði á borð við Up Helly Aa og hina þekktu ullarviku. Áhersla verður á örnefni og tungumálið, en hjaltlenska var nýlega viðurkennt sem sjálfstætt tungumál og líkist á margan hátt íslensku. Loks verður farið yfir samgöngur og ferðaþjónustu á eyjunum og hagnýt ráð fyrir ferðalanga.
Námskeiðið hentar öllum sem hafa áhuga á Hjaltlandi, hvort sem þeir eru aðdáendur bókanna eða sjónvarpsþáttanna um eyjarnar, hafa heimsótt eyjarnar eða hyggja á slíkt ferðalag. Þau sem heimsótt hafa Færeyjar og/eða Orkneyjar hefðu einnig eflaust gaman af því að bera saman menningu og sögu þessara svæða.
Engrar fyrri þekkingar er krafist. Stuðst verður við leiðsögubókina Shetland eftir Laurie Goodlad og gefst þátttakendum færi á að kaupa hana á námskeiðinu hjá kennara eða panta hana á netinu ef vill. Bókin er á ensku.
4. nóvember – 11. nóvember 2026
5 klst. – 2 skipti
Endurmenntun Háskóla Íslands
4. nóvember kl. 19:00 – 21:30
11. nóvember kl. 19:00 – 21:30
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Staðnám1. september – 10. september 2026
10 klst. – 4 skipti
Snemmskráningarverð
79.900 kr.
Staðnám7. september – 9. september 2026
4 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
25.900 kr.
Staðnám9. september – 16. desember 2026
60 klst. – 16 skipti
Snemmskráningarverð
379.900 kr.
Staðnám22. september – 10. nóvember 2026
16 klst. – 8 skipti
Snemmskráningarverð
38.900 kr.
Staðnám23. september – 11. nóvember 2026
16 klst. – 8 skipti
Snemmskráningarverð
38.900 kr.
Staðnám5. október – 19. október 2026
8 klst. – 4 skipti
Snemmskráningarverð
45.900 kr.
Staðnám13. október – 20. október 2026
5 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
28.900 kr.
Staðnám13. október – 20. október 2026
4 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
34.900 kr.
Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.