Fara í meginmál

Áfanga­stað­ur­inn Ís­land

Meg­in­markmið nám­skeiðs­ins er að veita hag­nýta yf­ir­sýn yfir Ís­land sem ferða­manna­land og þjálfa nem­end­ur í hönn­un, skipu­lagn­ingu og fram­kvæmd ferða.

Þetta námskeið er hluti af leiðsögunámi en opið öllum áhugasömum. Hægt er að taka námskeiðið með tvennum hætti: Án námsmats -fyrir þau sem vilja sækja námskeiðið sér til fróðleiks og skemmtunar. Með námsmati – fyrir þau sem vilja fá staðfest námskeið með námsárangri og geta þá nýtt það inn í leiðsögunám síðar.Þau sem hyggjast taka námskeiðið með námsmati þurfa að uppfylla inntökuskilyrði leiðsögunáms. Viðkomandi þurfa að hafa samband við Endurmenntun með því að senda tölvupóst á netfangið nemehi@hi.is.

Meginmarkmið námskeiðsins er að veita hagnýta yfirsýn yfir Ísland sem ferðamannaland og þjálfa nemendur í hönnun, skipulagningu og framkvæmd ferða. Fjallað er um helstu áfangastaði, ferðaleiðir og aðdráttarafl landsins með hliðsjón af náttúru, sögu, menningu og samfélagi. Nemendur vinna með ferðagögn, kort og stafrænar lausnir til að kynna sér svæði, meta afþreyingarmöguleika og þróa heildstæðar ferðaáætlanir með áherslu á sjálfbærni og gæði þjónustu. Námskeiðið tengir fræðilega þekkingu við vettvang með kynningarferðum um algengar ferðaleiðir þar sem nemendur fylgjast með störfum reyndra leiðsögumanna; skipulagi, samskiptum og framkvæmd leiðsagnar. Jafnframt fá nemendur þjálfun í hönnun og framkvæmd leiðsagðra gönguferða með áherslu á öryggi, umhverfistúlkun og frásagnaraðferðir. Áhersla er lögð á tímastjórnun, hópstjórn og faglega miðlun upplýsinga í raunverulegum aðstæðum.

Hæfniviðmið:

Við lok námskeiðsins getur nemandi:

  • lýst helstu áfangastöðum og ferðaleiðum Íslands og sérkennum þeirra.
  • aflað og greint gögn um áfangastaði og afþreyingarmöguleika fyrir ólíka markhópa.
  • skipulagt og tímasett dagsferðir og lengri ferðir með hliðsjón af þörfum ferðamanna.
  • beitt kortum, GPS og stafrænum verkfærum við hönnun og útfærslu leiða.
  • beitt aðferðum umhverfistúlkunar við miðlun fræðslu í ferðum.
  • greint skipulag, samskipti og framkvæmd leiðsagnar í vettvangsferðum.
  • leiðbeint hópi á öruggan og skipulegan hátt með hliðsjón af upplifun og sjálfbærni.

Námskeiðið er skipulagt sem fjarnám með staðlotum. Kennt er á íslensku og námsmat fer einnig fram á íslensku. Í upphafi hvers námskeiðs er fjarfundur með kennara og upptökur af fyrirlestrum eru í kjölfarið gerðar aðgengilegar á kennslusvæði. Staðlota í námskeiðinu er laugardaginn 10. apríl 2027, kl. 9:00 – 16:00.

Stað- og fjarnám

6. apríl – 10. apríl 2027

Tímalengd ekki skráð

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

6. apríl kl. 17:00 – 19:55

10. apríl kl. 9:00 – 16:00

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

190.200 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Áfangastaðurinn Ísland

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.