Stað- og fjarnámLeiðsögumaðurinn
1. september – 26. september 2026
21 klst. – 3 skipti
93.400 kr.
Hver eru sérkenni eldvirkni á Íslandi og hvernig á tilvist jökla sinn þátt í hegðun og eðli eldgosa sem hér verða?

Af hverju er Ísland til úti í miðju Atlantshafi og hvers vegna eru hér stórar megineldstöðvar? Hver eru sérkenni eldvirkni á Íslandi og hvernig á tilvist jökla sinn þátt í hegðun og eðli eldgosa sem hér verða?
Á þessu námskeiði verður veitt innsýn í hvernig Ísland varð til og hvernig það hefur þróast í tímans rás. Farið verður lauslega yfir jarðsögu Íslands en einkum horft til eldvirkninnar, hvernig eldfjöllin okkar eru, hverjar hugmyndirnar eru um innri gerð þeirra og hvað stýrir eldvirkninni. Jafnframt verður fjallað um hvernig framþróun margskonar mælinga og tækni á síðustu áratugum hefur opnað okkur leiðir til að skyggnast inn í rætur eldfjallanna og skilja hvernig þau virka.
Á fyrra kvöldinu verður farið yfir byggingu Íslands og hvernig eldfjöllin tengjast henni. Rakin verður í stórum dráttum saga eldvirkni frá landnámi og fjallað um áhrif umhverfisins á hegðun eldgosa. Meðal annars verður rætt um öskjurnar sem eru í mörgum megineldstöðvum og hvernig þær hafa myndast.
Á seinna kvöldinu verður fjallað um stöðu þekkingar í dag, áhrif loftslagsbreytinga og hvernig bráðnun jökla kann að hafa áhrif á þróun eldvirkninnar á næstum áratugum eða öldum. Tilkoma rauntímamælinga á jarðskjálftavirkni og aflögun eldfjalla á síðustu áratugum verður rakin og hvernig þessar aðferðir hafa stórbætt getu okkar til að skilja hvað er í gangi á hverjum tíma, hvers megi vænta á næstunni o.s.frv. Jafnframt verður rætt um takmarkanir núverandi þekkingar, hversu erfitt er að segja fyrir um hvenær gos verður eða hversu stór atburður kunni að vera í vændum.
Bæði kvöldin verður almenn umræða í lokin um viðfangsefnin, með þátttöku sem flestra. Námskeiðið hentar öllum áhugasömum um eldfjöll Íslands, en ekki eru gerðar kröfur um neina forþekkingu á viðfangsefninu.
27. október – 3. nóvember 2026
4 klst. – 2 skipti
Endurmenntun Háskóla Íslands
27. október kl. 19:30 – 21:30
3. nóvember kl. 19:30 – 21:30
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Stað- og fjarnám1. september – 26. september 2026
21 klst. – 3 skipti
93.400 kr.
Staðnám7. september – 9. september 2026
4 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
25.900 kr.
Stað- og fjarnám29. september – 17. október 2026
15 klst. – 2 skipti
93.400 kr.
Stað- og fjarnám20. október – 14. nóvember 2026
21 klst. – 2 skipti
125.100 kr.
Fjarnám21. október 2026
2,5 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
21.900 kr.
Staðnám29. október – 5. nóvember 2026
4 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
25.900 kr.
Staðnám4. nóvember – 11. nóvember 2026
5 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
29.900 kr.
Stað- og fjarnám17. nóvember – 5. desember 2026
24 klst. – 2 skipti
125.100 kr.
Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.