Fara í meginmál

Íran og Írak. Öxul­veldi hins illa?

Hvað er hægt að læra af reynslu þess­ara tveggja sögu­frægu ná­granna­ríkja?

Helstu deiluefni heimsins um þessar mundir eru málefni Mið-Austurlanda og þar eru nágrannaríkin Íran og Írak í stóru hlutverki. Með því að flétta saman og rekja sögu landanna tveggja verður ljósi varpað á ástandið eins og það blasir við nú. Með því að skyggnast að baki fyrirsagna fjölmiðlanna mun margt forvitnilegt koma í ljós og því auðveldara að vega og meta hvað að er í Persaflóanum og almennt í Mið-Austurlöndum.

Í fyrstu tímunum verður stjórnmálasaga Írak og Íran á 20. öld skoðuð með sérstöku tilliti til þróunar þjóðernishyggju, hlutverks vestrænna ríkja, trúarbragða og byltingar. Í seinni tímunum verður saga 21. aldar rakin og rætt þá m.a. um innrás og hernám Bandaríkjanna í Írak, grænu byltinguna í Íran, borgarastyrjaldir, hryðjuverk, fjöldamótmæli, átök Íran, Bandaríkjanna og Ísrael, Hormuz-sundið, vatnsskort, olíuframleiðslu, stöðu kvenna, menningarstarfsemi og framtíð ríkjanna.

Hvað er hægt að læra af reynslu þessara ríkja?

„Kenn­ar­inn þekk­ir sögu og stað­reynd­ir/at­burði vel og gerir efnið ótrú­lega lif­andi og spenn­andi."

Fjarnám

7. janúar – 11. mars 2027

10 klst. – 5 skipti

Fer fram í rauntíma á ZOOM

Dag­skrá

7. janúar kl. 19:15 – 21:15

27. janúar kl. 19:15 – 21:15

11. febrúar kl. 19:15 – 21:15

18. febrúar kl. 19:15 – 21:15

11. mars kl. 19:15 – 21:15

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

42.900 kr.

Snemmskráning: 29. desember. Almennt verð 47.200 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Íran og Írak. Öxulveldi hins illa?

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.