Fara í meginmál

Að ferð­ast ein um heim­inn

5 stjörnur

Á þessu nám­skeiði er fjall­að um hvað ber að hafa í huga þegar við erum ein á ferð úti í hinum stóra heimi og hvers konar æv­in­týri bíða þeirra sem þora.

Að ferðast ein eða einn er stórkostlegur ferðamáti. Það felur í sér mikið frelsi en á sama tíma nokkrar áskoranir. Á þessu námskeiði verður fjallað um hvað ber að hafa sérstaklega í huga þegar við erum ein á ferð úti í hinum stóra heimi og hvers konar ævintýri bíða þeirra sem þora.

Að ferðast ein eða einn er allt öðruvísi en að vera með öðrum á ferð. Við höfum frelsi til að gera það sem hugurinn vill hverju sinni án þess að hafa áhyggjur af öðrum. Við þurfum ekki að bíða eftir því að finna ferðafélaga, við þurfum ekki að laga okkur að áhuga og óskum annarra varðandi áfangastað, gististað, mataröflun og tímasetningar. Við förum þegar okkur langar til og við gerum það sem við viljum gera og það er frábært! Ævintýrin bíða okkar handan við hornið og við skoðum hvað þarf að hafa sérstaklega í huga þegar við erum ein á ferð.

Fyrir alla áhugasama um að ferðast einir og fyrir þá sem hafa látið hjá liggja að fara í ferðalög vegna skorts á ferðafélaga. Námskeiðið veitir hvatningu og innblástur til að leggja af stað einir á vit ævintýranna.

„Per­sónu­leg nálg­un og góðar ábend­ing­ar"

Fjarnám

9. febrúar 2027

3 klst. – 1 skipti

Fer fram í rauntíma á ZOOM

Dag­skrá

9. febrúar kl. 18:00 – 21:00

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

22.900 kr.

Snemmskráning: 31. janúar. Almennt verð: 25.200 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Að ferðast ein um heiminn

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.