Fara í meginmál

Þýska fyrir byrj­end­ur I

Þetta nám­skeið er fyrir alla þá sem vilja ná tökum á helstu und­ir­stöðu­at­rið­um í þýsku máli á skömm­um tíma.

Í samstarfi við Mála- og menningardeild við Hugvísindasvið HÍ.

Þetta námskeið er fyrir alla þá sem vilja ná tökum á helstu undirstöðuatriðum í þýsku máli á skömmum tíma. Lögð er jöfn áhersla á lestur, hlustun, ritun og talfærni. Farið verður yfir grunnhugtök í þýskri málfræði.Engrar forkunnáttu er krafist. Athugið að námskeiðið gildir ekki til eininga í BA-námi í þýsku.

Námskeiðið er kennt í 6 vikur, tvisvar í viku, 80 mínútur í senn, á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 16:40 – 18:10 í Veröld – Húsi Vigdísar.

Hæfniviðmið:Í lok námskeiðs hafa nemendur:

  • náð tökum á einföldum orðaforða daglegs lífs og geta tjáð sig um sjálfa sig, nám, starf, o.s.frv.
  • öðlast skilning á grunnatriðum þýskrar málfræði
  • kynnst algengustu málhljóðum í þýskum framburði

Nemendur geta:

  • lesið einfalda texta á þýsku eins og t.d. upplýsingaskilti
  • skilið einfalt hlustunarefni á þýsku
  • ritað einfaldan texta á þýsku eins og t.d. fylla út eyðublöð með persónulegum upplýsingum.

Námskeiðið er kennt á ensku.

Námskeiðið er kennt í samstarfi við Endurmenntun HÍ en nemendur HÍ greiða ekki gjald fyrir þátttöku og er þeim bent á að skrá sig í gegnum Uglu.

Sjá kennsluskrá hér.

Þátttakendum er bent á að hægt er að kaupa vinnubækur námskeiðsins hjá Bóksölu stúdenta, Momente A1 Kursbuch og Momente A1 Arbeitsbuch.

Staðnám

25. ágúst – 1. október 2026

18 klst. – 2 skipti

Háskóli Íslands, Veröld - hús Vigdísar

Dag­skrá

25. ágúst kl. 16:40 – 18:10

1. október kl. 16:40 – 18:10

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

5 laus pláss

Verð

100.000 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Þýska fyrir byrjendur I

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.